Innlent

Mikið breytt eftir umfjöllun fjárlaganefndar

Magnús Már Guðmundsson skrifar
Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar. Mynd/GVA
Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar. Mynd/GVA
Verulegar breytingar hafa verið gerðar á frumvarpi um ríkisábyrgð vegna Icesave í meðförum fjárlaganefndar. Þetta segir Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar. Hann mælti fyrir nefndaráliti meirihlutans þegar þriðja og lokaumræða frumvarpsins hófst í dag. Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi flokksins í fjárlaganefnd, sagði ríkisstjórnina hafa orðið afturreka með upphaflega samkomulagið við Breta og Hollendinga. Alþingi hefur haft frumvarpið til umfjöllunar frá því í byrjun júní.

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði um væri að ræða algjöra gjörbreytingu á frumvarpinu. Hann vitnaði til orða hæstaréttarlögmannsins Ragnars Halls í Morgunblaðinu í dag sem telur að Alþingi hafi sýnt styrk sinn í málinu. Nefndarvinnan í fjárlaganefnd hafi gjörbreytt málinu og skapað betri sátt.

Annar þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Birgir Ármannsson,  sagði ekkert standa eftir að upphaflega frumvarpinu nema fyrirsögnin. Það hafi tekið gríðarlegum framförum.

Guðbjartur sagði verulegar breytingar hafa verið gerðar á málinu og það hafi styrkst í umfjöllun fjárlaganefndar enda væri það hlutverk Alþingis. Hann sagði fyrirvaranna veigamikla. Hann þakkaði félögum sínum í fjárlaganefnd fyrir samvinnuna. Það hafi ekki verið upplifun hans að keyra ætti málið í gefnum nefndina og þingið.

Kristján Þór sagði að ríkisstjórnin hefði verið gerð afturreka með samkomulagið við hollensk og bresk stjórnvöld. Alþingi hafi gert grundvallarbreytingar á málinu. Hann hrósaði Guðbjarti og Árna Þór Sigurðssyni, þingmanni VG, fyrir forystu þeirra í málinu innan fjárlaganefndar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×