Mikið breytt eftir umfjöllun fjárlaganefndar Magnús Már Guðmundsson skrifar 27. ágúst 2009 11:05 Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar. Mynd/GVA
Verulegar breytingar hafa verið gerðar á frumvarpi um ríkisábyrgð vegna Icesave í meðförum fjárlaganefndar. Þetta segir Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar. Hann mælti fyrir nefndaráliti meirihlutans þegar þriðja og lokaumræða frumvarpsins hófst í dag. Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi flokksins í fjárlaganefnd, sagði ríkisstjórnina hafa orðið afturreka með upphaflega samkomulagið við Breta og Hollendinga. Alþingi hefur haft frumvarpið til umfjöllunar frá því í byrjun júní. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði um væri að ræða algjöra gjörbreytingu á frumvarpinu. Hann vitnaði til orða hæstaréttarlögmannsins Ragnars Halls í Morgunblaðinu í dag sem telur að Alþingi hafi sýnt styrk sinn í málinu. Nefndarvinnan í fjárlaganefnd hafi gjörbreytt málinu og skapað betri sátt. Annar þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Birgir Ármannsson, sagði ekkert standa eftir að upphaflega frumvarpinu nema fyrirsögnin. Það hafi tekið gríðarlegum framförum. Guðbjartur sagði verulegar breytingar hafa verið gerðar á málinu og það hafi styrkst í umfjöllun fjárlaganefndar enda væri það hlutverk Alþingis. Hann sagði fyrirvaranna veigamikla. Hann þakkaði félögum sínum í fjárlaganefnd fyrir samvinnuna. Það hafi ekki verið upplifun hans að keyra ætti málið í gefnum nefndina og þingið. Kristján Þór sagði að ríkisstjórnin hefði verið gerð afturreka með samkomulagið við hollensk og bresk stjórnvöld. Alþingi hafi gert grundvallarbreytingar á málinu. Hann hrósaði Guðbjarti og Árna Þór Sigurðssyni, þingmanni VG, fyrir forystu þeirra í málinu innan fjárlaganefndar.
Mest lesið Fimm ríki fordæma ísraelsk stjórnvöld Erlent Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Innlent Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Erlent Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Innlent Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið Innlent Fleiri fréttir Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Sjá meira