Telegraph fjallar um Essasa Sue Atli Steinn Guðmundsson skrifar 23. desember 2009 08:16 Essasa Sue.
Malasísk kona hefur heldur betur hlotið athygli út á froskaauglýsingar Vodafone. Þeir eru væntanlega fáir sem hafa ekki heyrt einhverja útgáfu af auglýsingum Vodafone þar sem Pétur Jóhann Sigfússon ljáir froski nokkrum rödd sína og hefur þegar komið sér upp nokkrum ódauðlegum frösum, þar á meðal hinu þekkta ávarpi „essasú?" Fyrir þessu hefur 19 ára gömul kona í Malasíu heldur betur fengið að finna að sögn breska blaðsins Telegraph en manneskjan heitir Essasa Sue og hleður nú á sig vinum á Facebook-síðu sinni, flestum íslenskum. Eins og þetta nægi ekki hefur verið komið upp aðdáendahópi Essösu á Facebook og berst sá fyrir því að fá hana í opinbera heimsókn til Íslands. Um þúsund manns hafa þegar skráð sig í hópinn. Fullu nafni heitir Essasa reyndar Essasa Sie Sue Wei og segir í viðtali við Telegraph að það sé hreint út sagt magnað að frasi úr auglýsingu í allt öðrum heimshluta hljómi eins og nafnið hennar. Hún lætur þess einnig getið að allir nýju íslensku vinirnir hennar, tæplega 3.000 talsins, séu hið geðþekkasta fólk og útilokar hreint ekki að hún líti í heimsókn hingað einn daginn. Telegraph ræðir einnig við Sigurjón Hallgrímsson, stofnanda baráttuhópsins á Facebook, sem segir að allt hafi þetta byrjað sem grín. Því er auðtrúað enda er samhljómur kvenmannsnafns og bablandi froskins með barnsröddina ekkert annað en bráðfyndinn. Lesa má frétt Telegraph hér.
Mest lesið „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Fleiri fréttir Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Sjá meira