Nouri al-Maliki einn á báti 26. ágúst 2009 00:30 Sheikh Khaled Al-Mulla Skýrði frá nýja sjía-bandalaginu á blaðamannafundi í gær.nordicphotos/AFP
Tveir stærstu flokkar sjía-múslima á Íraksþingi hafa myndað með sér bandalag, ásamt litlum flokkum súnní-múslima, en í andstöðu við Nouri al-Maliki, forsætisráðherra, sem sjálfur er sjía-múslimi og hefur til þessa notið stuðnings flokka sjía á þinginu. Þetta þýðir að al-Maliki þarf að afla sér stuðnings meðal súnní-múslima á þinginu, eigi hann að geta setið áfram í embættinu eftir þingkosningar í janúar. Dawa, flokkur al-Malikis, gekk ekki til liðs við þetta nýja bandalag vegna þess að hinir flokkarnir vilja ekki fyrirfram tryggja stuðning þess við að hann verði áfram forsætisráðherra. Nýja bandalagið nefnist Íraska þjóðbandalagið. Að því standa bæði Íslamsráðið, sem er stærsti flokkur sjía á þingi, og flokkur herskáa klerksins Muqtada al-Sadrs. Báðir þessir flokkar hafa náin tengsl við stjórnvöld í Íran. Ná þetta nýja bandalag góðum árangri í kosningunum í janúar má búast við auknum áhrifum Íransstjórnar í Írak, tæpu ári áður en Bandaríkjaher ætlar að vera alfarinn frá Írak. Til þess að vega á móti þessu þyrfti al-Maliki að leggja enn frekari áherslu á vilja sinn til að ná samkomulagi við bæði súnnía og kúrda.- gb
Mest lesið Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Innlent Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Innlent Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Innlent Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Innlent Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Erlent Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Innlent Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Innlent Fleiri fréttir Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Vanræksla við hönnun, vottun, viðhald og skoðun Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Hollendingar kaupa vopn af Bandaríkjunum fyrir Úkraínumenn Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Neitað um lausn gegn tryggingu Bolsonaro í stofufangelsi Danskur dýragarður óskar eftir gæludýrum til að fóðra rándýrin Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Tæplega þrjátíu drepin á meðan þau biðu eftir mat Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Tugir drukknuðu og margra enn saknað Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Rússneskt eldfjall gýs í fyrsta sinn í sex hundruð ár Segir „erfiðara“ að náða Diddy eftir „hræðilegar yfirlýsingar“ Leiddi fordæmalausa bænastund á Musterishæð Eldur í olíugeymslu í Sochi eftir drónaárás Reiður Trump segir Schumer að fara til helvítis Grunaður um að myrða heila fjölskyldu en skilja ungabarnið eftir á lífi Beinaber gísl látinn grafa eigin gröf á Gasa Að bugast á hálf nöktum ferðamönnum og beita sektum „Fordæmalaus hitabylgja“ leikur Skandínava grátt Maxwell flutt í þægilegra fangelsi Breyti engu á jörðu niðri að viðurkenna sjálfstæði Palestínu Trump ræsir út kjarnorkukafbáta eftir „ögrandi“ ummæli Rússa Sjá meira