Björgólfur: Einn eftirminnilegasti dagurinn á ævinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. september 2009 18:00 Björgólfur Takefusa skoraði fimm af sextán mörkum sínum í Pepsi-deildinni á móti Val í dag. Mynd/Stefán
Björgólfur Takefusa fór á kostum í 5-2 sigri KR á Val og tryggði sér gullskóinn í Pepsi-deild karla með því að setja boltann fimm sinnum framhjá Kjartani Sturlusyni markverði Vals í leiknum. „Þetta hlýtur að vera einn eftirminnilegasti dagur sem ég hef upplifað. Ég vona að þetta verði samt ekki sá eini," sagði Björgólfur Takefusa í skýjunum eftir að hafa skorað fimm mörk í sigri á Val og tryggt sér gullskóinn. „Maður hafði engu að tapa og var vel gíraður fyrir leikinn. Það gekk bara allt upp í dag," sagði Björgólfur en bætti strax við: „Reyndar gekk ekki allt upp því ég klúðraði einhverjum tveimur til þremur dauðafærum sem ég átti að skora úr," sagði Björgólfur í léttum tón. „Þetta er frábært fótboltalið og við leikmennirnir í liðinu erum búnir að smella vel saman í ár. Við erum að spila skemmtilegan fótbolta og það er mjög gaman af þessu," sagði Björgólfur. „Það þurfti mikið að ganga upp til þess að ég næði í gullskóinn. Ég var samt ekki að hugsa samt um það. Ég ætlaði að sjá hvað ég gæti gert og hugsa fyrst og fremst um að liðið myndi vinna. Ef ég myndi skora þá væri það flott og ég ætlaði síðan bara að sjá til í lokin hverju þetta myndi skila," sagði Björgólfur sem var lengi að hugsa um hvort að hann yrði með í ár en hann sér ekki eftir því að hafa byrjað aftur. Björgólfur veit að KR-ingum leiddist það ekkert sérstaklega að hafa unnið 5-2 stórsigur á erkifjendum sínum á Hlíðarenda. „Það er mikill rígur á milli Vals og KR og ég held að margir KR-ingar séu ánægðir með að KR skildi vinna 5-2 á Hlíðarenda. Það er frábært að fá að taka þátt í slíkum sigri og hafa getað gert eitthvað í þeim leik. Stuðningsmennirnir fara örugglega ánægðir heim og skemmta sér í kvöld," sagði Björgólfur að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Íslenski boltinn Harðvítugar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Andri Lucas svaraði fautaskap með marki Enski boltinn „Öll tækifæri sem ég hef fengið eru frá Íslandi“ Sport Bragðdauft og svekkelsi á Anfield Enski boltinn Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn Valshjartað slær enn hjá hetju KR Íslenski boltinn Sunderland - Arsenal | Englandsmeistararnir halda til Sunderland Enski boltinn Landsliðskona opnar sig um áfall: „Hefði geta farið mun verr“ Fótbolti Fleiri fréttir Grindavík/Njarðvík - Þróttur R. 1-2 | Þróttur bikarmeistari í fyrsta sinn Valshjartað slær enn hjá hetju KR KR upp í Bestu deildina MSK Zilina að kaupa Dag Orra frá Val Þetta verður spennuleikur í Laugardalnum KR með örlögin í sínum höndum og sæti í Bestu deildinni í boði Töpin sitja ekki í leikmönnunum fyrir úrslitaleikinn Alþjóðadómarinn verður yfirþjálfari Furðar sig á verðlaunafénu eftir úrslit bikarsins Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Með innanbúðarupplýsingar um gífurleg áhrif Eiðs Smára Þróttarar komnir yfir í einvígi sínu gegn Njarðvík „Enginn með heljarinnar tak á Heimi Guðjóns“ Sjá meira