Sport

Bakgarðsáskorunin: „Éta eða vera étinn“

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Tómas Þór hefur mest farinn 38 hringi.
Tómas Þór hefur mest farinn 38 hringi. Sportmyndir/Gummi stóri

Vísir stendur fyrir Bakgarðsáskoruninni þar sem lesendum gefst tækifæri á að kynnast landsliðsfólki í Bakgarðshlaupi. Tómas Þór Jacobsen er einn þeirra.

Tómas Þór er 34 ára landsliðsmaður í Bakgarðshlaupi. Hann tekur þátt í landsliðakeppninni sem fer fram þann 17. október. Hann hefur mest farið 38 hringi en hlaupið gengur út á að hlaupa 6,7 kílómetra á klukkustund, eins oft og hægt er.

Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi hefst 17. október og verður í beinni útsendingu á Vísi.

Hvenær byrjaðir þú að hlaupa?

2020

Af hverju ákvaðst þú að taka þátt í Bakgarðshlaupinu? Hvað hefur þú tekið oft þátt?

Ég ákvað að taka þátt í bakgarði því mér fannst fyrirkomulagið hljóma spennandi :D öðruvísi en önnur hlaup. Ég man ekki hversu oft ég hef tekið þátt, ég hef allavega tekið 2x þátt þar sem ég fer all in

Tómas ætlar að fara eins marga hringi og líkaminn leyfir.Sportmyndir/Gummi stóri

Hvern er best að spjalla við í hringnum?

Ómögulegt að velja einn liðsfélaga, allt toppfólk með mér í liðinu!

Hvað er best að borða þegar þú tekur þátt í Bakgarðinum?

Sama svar og fyrir ofan, ómögulegt að velja eitt! En hrísgrjón og pizza er alltaf klassík.

Hvaða liðsmaður er með besta nestið?

Ég sá einhvern tímann Adam Komorowski elda eitthvað djúsí á prímus í einum bakgarði, þannig ég segi Adam!

Hvað gerir þú þegar þú ert ekki að hlaupa?

Hlaupa á eftir þremur börnunum mínum

Hvað ætlar þú þér að fara marga hringi í október?

Eins marga og líkaminn leyfir!

Hvað er það vandræðalegasta sem þú hefur lent í í Bakgarðshlaupinu?

Féll næstum því í yfirlið þegar ég sá Gumma Lú í fyrsta sinn (það í bakgarði), maðurinn er ekkert eðlilega myndarlegur.

Hver er uppáhalds Bakgarðsbrautin þín og af hverju?

Öskjuhlíðin, mjög áhorfendavæn braut og mikil stemmning í brautinni!

Tómas með góðum hlaupafélögum.Sportmyndir/Gummi stóri

Hvaða liðsmaður kemur mest á óvart í hlaupinu?

Sölvi minn. Svo gæti Dísa líka komið á óvart með því að borða eitthvað annað en instant oats milli hringja.

Hver er þinn stærsti styrkleiki í Bakgarðshlaupi? En veikleiki?

Elska að borða! Og þetta er svolítið að éta eða vera étinn.

Hingað til hefur það verið mjöðmin þegar líða fer á, en hef verið að styrkja hana í Primal, vonum að það skili sér.

Hvað er það skrítnasta sem þú hefur gert til að halda þér gangandi í hlaupi?

Rífa af mér nánast öll föt í september bakgarði um miðja nótt og það var ískalt. Var mjög þreyttur og gerði það til þess að sofna ekki.

Hver er duglegastur í liðinu við að hvetja aðra áfram?

Skagamaðurinn Guðjón og Þorleifur, mikil hvatning að hlaupa með Þorleifi.

Ef þú mættir bara hlusta á eitt lag allan tímann, hvaða lag væri það?

Keep on movin‘ með Five, geggjað lag

Hvernig myndir þú lýsa þér fyrir einhverjum sem þekkir þig ekki?

Tæpir tveir metrar

Hvað er best að gera eftir Bakgarðshlaup?

Fara í bað og borða eitthvað sveitt

Í einum hring eiga allir hlauparar að vera í tútú-pilsi.Sportmyndir/Gummi stóri

Hver er líklegastur til að byrja að syngja á hlaupum?

Dísa er algjör söngfugl og stemmningskona

Ef þú ættir að lýsa liðinu með þremur orðum, hvaða orð myndirðu velja?

Metnaður, stemmning, kærleikur




Fleiri fréttir

Sjá meira


×