Framlög til háskóla hærri 2010 en 2008 29. júní 2009 03:00 háskóli íslands Langstærstur hluti fjárveitinga til háskóla fer til Háskóla Íslands, 9 milljarðar af 14,5 milljörðum í ár. Útgjöld til háskólanna voru árið 2000 4,3 milljarðar og hafa því meira en þrefaldast á níu árum.fréttablaðið/stefán
Framlög til háskóla hafa meira en þrefaldast á síðustu níu árum. Árið 2000 námu framlög ríkisins til allra skólanna 4,3 milljörðum króna. Á fjárlögum 2009 nemur sú upphæð 14,5 milljörðum. Framlög til skólanna á næsta ári verða hins vegar skert um 8,5 prósent á næsta ári. Eftir niðurskurðinn verða framlögin engu að síður hærri en árið 2008, en þá námu þau 12,9 milljörðum króna. Miðað við 8,5 prósenta niðurskurð á næsta ári verður framlagið 2010 13,3 milljarðar króna. Framlögin hafa aukist jafnt og þétt síðustu ár en mest var aukningin árið 2008. Þá fóru þau úr 10,5 milljörðum árið áður í 12,9 milljarða. Langstærsti hluti framlaga fara til Háskóla Íslands, eða 9 milljarðar. Það er mikil aukning frá árinu 2000, en þá nam framlagið 2,7 milljörðum króna. Til Háskólans í Reykjavík fara í ár 2,2 milljarðar og 1,4 til Háskólans á Akureyri. Sá síðastnefndi fékk árið 2000 399 milljónir króna. Háskólinn í Reykjavík var þá rekinn undir nafninu Viðskiptaháskólinn í Reykjavík og fékk úthlutað 212 milljónum. Tækniskólinn, sem nú tilheyrir Háskólanum í Reykjavík, fékk árið 2000 263 milljónir króna. Rétt er að geta þess að eftir á að taka tillit til verðlagsuppbóta í þeim tölum sem birtar eru fyrir árið 2009, en fjármálaráðuneytið uppfærir reikningana í ágúst. Á fjárlögum 2009 fara 668 milljónir til Listaháskóla Íslands, 522 til Landbúnaðarháskóla Íslands, 348 til Háskólans á Bifröst og 260 til Hólaskóla - Háskólans á Hólum. Menntamálaráðuneytinu er gert að skera niður um 3,7 milljarða á næsta ári. Auk 8,5 prósenta niðurskurðar í háskólum verður skorið niður um 5 prósent í framhaldsskólum og um 1 milljarð til menningarmála. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra segir að í niðurskurðartillögum verði reynt að standa vörð um kjarnastarfsemina. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent „Þetta er erfiður mánudagur“ Innlent Fleiri fréttir Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Sjá meira