Dóttir Sophiu Hansen kvödd til vitnis á Íslandi Valur Grettisson skrifar 21. desember 2009 10:22
Sophia Hansen hefur verið ákærð fyrir að hafa borið Sigurð Pétur Harðarson, fyrrum útvarpsmann, röngum sökum sem leiddi til þess að hann var grunaður um skjalafals árið 2007. „Þetta er rangt," svaraði Sophia Hansen í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun þegar hún var spurð út í sakargiftirnar. Um er að ræða þrjú viðskiptabréf sem hún taldi nafn sitt falsað á. Fól hún lögfræðingi sínum að kæra málið til lögreglu. Í vitnaskýrslu hjá lögreglunni lýsti hún því yfir að hana grunaði að Sigurður Pétur hefði falsað nafnið hennar sem á að hafa leitt til þess að hann var ranglega sakaður um skjalafals. Samtals nam upphæð viðskiptabréfanna rétt rúmum 42 milljónum króna. Verjandi Sophiu, Kristján Stefánsson, sagði fyrir rétti að kveða þyrfti dóttur Sophiu til vitnis, en hún er búsett í Tyrklandi ásamt systur sinni. Þess má geta að dætur Sophiu hafa ekki komið til Íslands síðan fyrrum eiginmaður Sophiu, Halim Al, nam þær á brott snemma á tíunda áratugnum. Þegar haft var samband við Kristján sagðist hann ekki muna hvora dótturina þyrfti að kveða til vitnis. Spurður hvernig dóttir Sophiu tengdist sakamálinu beint sagði hann að það kæmi í ljós þegar búið væri að kveða hana til vitnis. Því er ljóst að dóttir Sophiu er hugsanlega á leiðinni til Íslands. Dóttir Sophiu er ekki eina manneskjan á erlendri grundu sem verður kvödd til vitnis, því ákæruvaldið hyggst kveða útlenda rithandarsérfræðinga til þess að bera vitni í málinu. Sigurður Pétur og Sophia hafa eldað grátt silfur undanfarin ár eftir kostnaðarsama baráttu Sophiu við að reyna að endurheimta dætur sínar frá Tyrklandi. Síðast höfðaði Sigurður Pétur einkamál á hendur Sophiu vegna peninga sem hann lánaði henni árið 1990. Dómur í því máli féll í febrúar, þá var Sophia dæmd til þess að greiða honum 20 milljónir króna. Verði Sophia dæmd sek þá gæti hún átt yfir höfði sér allt að 16 ára fangelsi. Aðalmeðferð málsins fer fram í byrjun febrúar.
Mest lesið Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Fleiri fréttir Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Sjá meira