Uppselt á tónleika Rökkurróar 23. mars 2009 02:15 Uppselt hefur verið á tvenna tónleika Rökkurróar, en hljómsveitin heldur alls 17 tónleika í Þýskalandi, Belgíu, Hollandi, Frakklandi, Danmörku og Sviss. „
Þetta er alveg fáránlegt því við vorum að búast við um 30 manns," segir Árni Þór Árnasson, gítar- og bassaleikari í hljómsveitinni Rökkurró, um tónleika sveitarinnar í Hannover í síðustu viku. Þar mættu um 130 tónleikagestir og vísa þurfti 50 manns frá vegna plássleysis. Rökkurró heldur alls sautján tónleika á ferðalagi sínu um Evrópu og voru komin hálfa leið til Würzburg þegar blaðamaður náði tali af þeim á föstudag. „Við erum búin með ferna tónleika og það hefur gengið langt fram úr björtustu vonum. Það var líka uppselt á tónleikunum okkar í Dresden þar sem við spiluðum í gömlu leikhúsi og við höfum aldrei spilað fyrir svona marga á Íslandi eins og við höfum gert hér að undanförnu," segir Árni. Aðspurður segir hann engan umboðsmann starfa fyrir sveitina. „Við erum með þýskan „booking agent" sem hefur bókað tónleikana, annars gerum við þetta bara sjálf og höfum verið að skipuleggja þennan túr frá áramótum. Við erum þrjú í hljómsveitinni sem erum búin að missa vinnuna svo við höfum ágætis tíma til að standa í þessu," bætir hann við og segir hljómsveitarmeðlimi jafnvel hafa þurft að framleiða sjálf plötur til að selja á ferðalaginu. „Við erum tvisvar búin að selja upp diskana okkar og fáum ekki meira fyrr en á mánudag svo við enduðum á því að kaupa karton og vatnsliti og máluðum á diska sem við brenndum á tónleikastaðnum og seldum," útskýrir Árni ánægður með viðtökurnar. „Það er engin afsökum fyrir íslensk bönd að túra ekki þó það sé kreppa. Eftir þennan túr verður auðveldara fyrir okkur að komast til stærri dreifingaraðila fyrir næstu plötu." -ag
Mest lesið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun Einar og Milla eiga von á dreng Lífið Fleiri fréttir Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Sjá meira