Verktakar bjóða undir kostnaðaráætlunum Vegagerðarinnar 24. mars 2009 18:43
Örvænting ríkir meðal verktaka sem gera nú allt að helmingi lægri tilboð í framkvæmdir fyrir Vegagerðina, en kostnaðaráætlun gerir ráð fyrir. Þetta ætti að þýða að hægt verði að ráðast í gagngerar umbætur á vegakerfinu. Vegagerðin opnaði í dag tilboð í lagningu kaflans sem tengir Vopnafjörð við Hringveginn. Alls bárust þrettán tilboð. Vegagerðin gerði ráð fyrir að verkið kostaði tæpan einn og hálfan milljarð króna. Nær öll tilboðin sem bárust, eða ellefu, voru undir þeirri upphæð. Þeir verktakar sem buðu lægst gerðu nær helmingi lægra tilboð en áætlun Vegagerðarinnar hljóðaði upp á eða rúmar sjö hundruð milljónir króna. Hreinn Haraldsson vegamálastjóri segir þau tilboð sem borist hafa á undanfarið yfirleitt lægri en þær kostnaðaráætlanir Vegagerðarinnar. Tilboðin sýni mjög lágar tölur miðað við það sem reiknað var með og séu allt niður í helming. Til samanburðar voru tilboð í verk sem boðin voru út þegar þenslan var sem mest í þjóðfélaginu yfirleitt svipuð og áætlanir gerðu ráð fyrir. Vegamálastjóri segir fleiri verktaka sækjast eftir verkefnum en áður og að sú tala hafi jafnvel tvöfaldast. Þetta sé vegna þess hve lítið sé um verkefni í verktakaiðnaðnum, sérstaklega í jarðverkefnum. Það sem sparast við lægri kostnað við verkin gæti orðið til þess að Vegagerðin fjölgaði verkefnum sínum. Vegamálastjóri segir þetta skapa möguleika á því að fara út í fleiri framkvæmdir á árinu en gert var ráð fyrir. Vegagerðin hafi ákveðna tölu til að eyða á árinu og lág tilboð skapi rými fyrir fleiri verk.
Mest lesið Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Trump sagður hlynntur afsali lands Erlent Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Innlent Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Erlent Hitamet aldarinnar slegið Veður Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Innlent Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Rjómablíða hætt að teljast til tíðinda fyrir austan Veður Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Innlent Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Innlent Fleiri fréttir Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Eldur á svölum reyndist vera íbúi að grilla Rýnt í fund Trump og Pútíns og jakkafataklæddir raðmaraþonhlauparar „Það hefði auðvitað verið betra“ Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Grunaðir um hópárás með kylfu Funda með foreldrum barna á Múlaborg á morgun Vilja stórefla samgöngur á Vesturlandi Sóttu mann sem féll niður bratta Hátt í þrjú hundruð mótmæla útlendingastefnu stjórnvalda Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Íslendingur lést vegna hitaslags Ókeypis veðmálasíður „ekki eins og áfengislaus bjór“ „Staðan er alvarleg en við vitum ekki hversu alvarleg hún er“ Vatn flæddi upp úr klósettum og niðurföllum Stuð og stemning á fjölskyldudögum í Vogum Fagna sekt vegna veðmálaauglýsinga og tjón eftir vatnsveður Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Sveitastjórn Rangárþings ytra gefur út framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Vatnstjón á Kjarvalsstöðum og sautján öðrum stöðum Kynferðisbrot á leikskóla og tímamótafundur forseta Líkamsárás á borði lögreglu Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Sjá meira