Innlent

50 milljarðar í eigu Tchenguiz frystir

Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar
Robert Tchenguiz.
Robert Tchenguiz.
Skilanefnd Kaupþings hefur látið frysta um fimmtíu milljarða króna í eigu félaga sem tengjast írakska athafnamanninum Robert Tchenguiz á Tortola eyju, að því er fram kemur í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins.

Bankinn naut aðstoðar fjölda erlendra lögmanna og endurskoðenda við að hafa uppi á fénu, en markmiðið er að tryggja útistandandi lán bankans. Tchenguiz var einn stærstu lánþega Kaupþings, en óvíst er hvenær hægt verður að endurheimta féð.

Líkt og fram kom á Vísi þegar lánabók gamla Kaupþings lak á netið fengu Tchenguiz og bróðir hans rúmlega 286 milljarða að láni hjá bankanum. Þá sat Robert Tchenguiz í stjórn Existu sem átti hlut í bankanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×