Innlent

Fleiri andvígir aðild að ESB

Fleiri landsmenn eru andvígir aðild Íslands að Evrópusambandinu en eru hlynntir því, samkvæmt könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir vefsíðuna Andríki.

Samkvæmt könnuninni, sem fór fram dagana 16. til 27. júlí, voru 29,2 prósent aðspurðra mjög andvígir aðild að sambandinu. Þá sögðust 19,3 prósent frekar andvígir, 17,6 prósent frekar hlynntir og 17,1 prósent mjög hlynntir. Aðrir, 16,9 prósent, sögðust hvorki vera hlynntir né andvígir aðild að Evrópusambandinu. - þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×