Ögmundur: Skýrslan slær öll met í yfirlæti Magnús Már Guðmundsson skrifar 3. september 2009 09:11 Mynd/Arnþór Birkisson
Heilbrigðisráðherra segir nýja skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) slá met í yfirlæti. Hann segir skýrslur stofnunnar unnar af einstaklingum sem upp til hópa aðhyllast hægri sinnaða markaðshyggju. Ráðherrann spyr hver greiði fyrir skýrsluna. Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, gagnrýnir einnig skýrsluna. Mikið rými er til að skera niður útgjöld til heilbrigðis- og menntamála án þess að það komi niður á gæðum þjónustunnar, svo sem haldið hefur verið fram í fyrri skýrslum OECD um Ísland sem kynnt var í gær. Að mati OECD er Íslandi best borið til lengri tíma litið innan Evrópusambandsins. Til að koma á stöðugleika hér á landi verður Ísland að sækja um aðild og taka upp evruna. Ögmundur Jónasson, heilbrigðisráðherra, segist í pistli á heimasíðu sinni margoft hafa vakið athygli á pólitískum afskiptum OECD. „Þó tel ég að nýjasta skýrslan slái flest met með yfirlætisfullum aðfinnslum og umvöndunum í okkar garð.“ Ráðherrann gagnrýnir niðurstöðu stofnunarinnar um að mikið rými sé til að skera niður til heilbrigðismála. Það þýði á mannamáli að hækka eigi sjúklingaskatta. „Ég spyr eins og fleiri, og mun spyrja við ríkisstjórnarborð, hver borgar fyrir skýrslugerð af þessu tagi? Læt ég þá liggja á milli hluta - að sinni - fráleitar fabúleringar um Evrópusambandsaðild Íslands,“ segir Ögmundur. Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, gagnrýnir einnig skýrsluna og segir hana vera íhlutun í íslensk stjórnmál sem ríkisstjórnin eigi að mótmæla.
Tengdar fréttir OECD: Mikið rými til að skera niður ríkisútgjöld Það er mikið rými til að skera niður útgjöld til heilbrigðis- og menntamála án þess að það komi niður á gæðum þjónustunnar, svo sem haldið hefur verið fram í fyrri skýrslum OECD um Ísland. 2. september 2009 10:17 Ríkisstjórnin á að mótmæla íhlutun OECD í íslensk stjórnmál Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, segir sérfræðinga Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) hafi blandað sér í íslensk stjórnmál með yfirlýsingum í dag þar sem þeir hvöttu til upptöku evru á grundvelli ESB-aðildar. Hafi þetta ekki verið gert í samráði við ríkisstjórnina á hún að mati Björns að mótmæla þessari íhlutun OECD í íslensk stjórnmál. 2. september 2009 23:30 ESB og evra besti kosturinn að mati sérfræðinga OECD Stærð íslensku bankanna, lánveitingar til tengdra aðila og flókin eignatengsl gerðu þá veika fyrir í alþjóðlegri kreppu, segir sérfræðingur OECD. Halda þarf gjaldeyrishöftum og háum stýrivöxtum enn um sinn. 3. september 2009 03:45 OECD: Frysta eða lækka laun opinberra starfsmanna Meðal þeirra atriði sem OECD ræðir um í nýrri skýrslu sinni um Ísland er að hin mikla raunhækkun launa meðal opinbera starfsmanna á undan förnum árum þurfi nú að ganga til baka. OECD mælir með því að launin verði fryst eða lækkuð sem liður í niðurskurðaráformum ríkisstjórnarinnar. 2. september 2009 12:35 Mest lesið Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Gróður farinn að grænka fyrir norðan Innlent Fleiri fréttir „Rúllandi rafmangsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Sjá meira
OECD: Mikið rými til að skera niður ríkisútgjöld Það er mikið rými til að skera niður útgjöld til heilbrigðis- og menntamála án þess að það komi niður á gæðum þjónustunnar, svo sem haldið hefur verið fram í fyrri skýrslum OECD um Ísland. 2. september 2009 10:17
Ríkisstjórnin á að mótmæla íhlutun OECD í íslensk stjórnmál Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, segir sérfræðinga Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) hafi blandað sér í íslensk stjórnmál með yfirlýsingum í dag þar sem þeir hvöttu til upptöku evru á grundvelli ESB-aðildar. Hafi þetta ekki verið gert í samráði við ríkisstjórnina á hún að mati Björns að mótmæla þessari íhlutun OECD í íslensk stjórnmál. 2. september 2009 23:30
ESB og evra besti kosturinn að mati sérfræðinga OECD Stærð íslensku bankanna, lánveitingar til tengdra aðila og flókin eignatengsl gerðu þá veika fyrir í alþjóðlegri kreppu, segir sérfræðingur OECD. Halda þarf gjaldeyrishöftum og háum stýrivöxtum enn um sinn. 3. september 2009 03:45
OECD: Frysta eða lækka laun opinberra starfsmanna Meðal þeirra atriði sem OECD ræðir um í nýrri skýrslu sinni um Ísland er að hin mikla raunhækkun launa meðal opinbera starfsmanna á undan förnum árum þurfi nú að ganga til baka. OECD mælir með því að launin verði fryst eða lækkuð sem liður í niðurskurðaráformum ríkisstjórnarinnar. 2. september 2009 12:35