Innlent

Tóku fíkniefni, peninga og þýfi

Allar tegundir fíkniefna virðast vera í umferð á götunni þótt lögregla hafi náð stórum sendingum, nú síðast í skútumálinu.
Allar tegundir fíkniefna virðast vera í umferð á götunni þótt lögregla hafi náð stórum sendingum, nú síðast í skútumálinu.

Fíkniefni fundust við húsleit lögreglu á tveimur stöðum á höfuðborgarsvæðinu í gær. Um var að ræða kókaín, amfetamín og hass.

Á báðum stöðum var einnig lagt hald á talsvert af peningum sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Í báðum tilfellum voru húsráðendur handteknir. Annar þeirra var einnig með þýfi í fórum sínum en hinn reyndist jafnframt vera eftirlýstur fyrir aðrar sakir. Mennirnir eru á þrítugs- og fertugsaldri og hafa áður komið við sögu hjá lögreglu.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann, 800-5005.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×