Páfi gerist listhneigður Atli Steinn Guðmundsson skrifar 23. nóvember 2009 08:45 Benedikt páfi.
Benedikt páfi sagði listamönnum heimsins um helgina að hann vildi gjarnan blása lífi í vináttu kirkjunnar og listanna. Benedikt ávarpaði nokkur hundruð listamenn hvaðanæva úr heiminum í Sixtínsku kapellunni í Vatíkaninu á laugardaginn. Meðal þess sem páfi lét frá sér fara í ávarpinu var sú skoðun hans að fegurðin væri stígurinn til guðdómsins og listamennirnir ættu að umvefja verk sín meiri andagift og skynja þannig tengslin við almættið. Vafalaust hefur Benedikt verið innblásinn af loftskreytingu kapellunnar sem Michelangelo málaði á sínum tíma og þykir ákaflega tilkomumikil. Meðal gesta páfa voru málarar, myndhöggvarar, arkítektar, skáld og leikstjórar svo eitthvað sé talið til og af nafntoguðum einstaklingum í hópnum má nefna ítalska leikstjórann Ennio Morricone, söngvarann Andrea Bocelli og bandaríska leikarann F. Murray Abraham sem hlaut Óskarsverðlaun fyrir túlkun sína á Salieri í kvikmyndinni Amadeus frá 1985. Páfi sagðist mjög gjarnan vilja endurreisa og styrkja samband kaþólsku kirkjunnar við heim listanna enda væri trúin næring listarinnar og leið hennar til fullkomnunar. Hér þykir kveða við nýjan tón eftir illindi Vatíkansins og rithöfundarins Dan Brown sem strauk kirkjunnar mönnum heldur betur rangsælis með skáldsögum sínum Da Vinci lyklinum og Englum og djöflum þar sem ýmislegt er sett fram í mótstöðu við hin kaþólsku fræði.
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Sjá meira