Ída truflaði eldsneytisvinnslu á Mexíkóflóa Atli Steinn Guðmundsson skrifar 10. nóvember 2009 07:17 Borpallur. Myndin tengist ekki þessari frétt.
Þriðjungur eldsneytisvinnslustarfsemi á Mexíkóflóa lá niðri í gær þegar hitabeltisstormurinn Ída fór um flóann og gekk meðal annars yfir olíuborpalla. Ída, sem gekk yfir El Salvador sem fellibylur um helgina og varð þar 124 að bana, hefur nú fallið niður í flokk hitabeltisstorms og er vindhraði hennar um 100 kílómetrar á klukkustund. Stormurinn fór yfir Mexíkóflóa og ógnaði þar olíu- og gasborpöllum en fjöldi starfsmanna var fluttur burt með þyrlum áður en Ída kom að pöllunum. Að minnsta kosti einn olíuborpallur, suður af New Orleans, varð fyrir tjóni og lá um þriðjungur allrar eldsneytisvinnslu á flóanum niðri í gær. Ída hefur nú tekið stefnuna á Alabama og Flórída og hafa yfirvöld skipað íbúum á svæðum, þar sem hætt er við flóðum í stormviðri, að yfirgefa heimili sín. Þá hefur að minnsta kosti einni höfn í Alabama verið lokað. Gert er ráð fyrir að starfsemi á olíuborpöllum verði komin í samt lag í dag en fellibylir á Mexíkóflóa geta hækkað eldsneytisverð í Bandaríkjunum í einu vetfangi með því að trufla framleiðsluna. Til að mynda rauk verðið upp nokkrum sinnum hin miklu fellibyljaár 2004 og 2005 en þá fóru bylir á borð við Katrínu um flóann og aðliggjandi ríki Bandaríkjanna með gríðarlegu tjóni. Gert er ráð fyrir að tæpar þrjár milljónir manna á svæðinu frá Lousiana til Flórída finni fyrir Ídu þegar hún gengur yfir.
Mest lesið Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Innlent Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Erlent Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Innlent Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Innlent Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Innlent Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Erlent Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Innlent Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Innlent Fleiri fréttir Vanræksla við hönnun, vottun, viðhald og skoðun Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Hollendingar kaupa vopn af Bandaríkjunum fyrir Úkraínumenn Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Neitað um lausn gegn tryggingu Bolsonaro í stofufangelsi Danskur dýragarður óskar eftir gæludýrum til að fóðra rándýrin Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Tæplega þrjátíu drepin á meðan þau biðu eftir mat Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Tugir drukknuðu og margra enn saknað Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Rússneskt eldfjall gýs í fyrsta sinn í sex hundruð ár Segir „erfiðara“ að náða Diddy eftir „hræðilegar yfirlýsingar“ Leiddi fordæmalausa bænastund á Musterishæð Eldur í olíugeymslu í Sochi eftir drónaárás Reiður Trump segir Schumer að fara til helvítis Grunaður um að myrða heila fjölskyldu en skilja ungabarnið eftir á lífi Beinaber gísl látinn grafa eigin gröf á Gasa Að bugast á hálf nöktum ferðamönnum og beita sektum „Fordæmalaus hitabylgja“ leikur Skandínava grátt Maxwell flutt í þægilegra fangelsi Breyti engu á jörðu niðri að viðurkenna sjálfstæði Palestínu Trump ræsir út kjarnorkukafbáta eftir „ögrandi“ ummæli Rússa „Clinton áætlunin“ líklega tilbúningur rússneskra njósnara „Ekki taka. Endurheimta. Þetta er okkar“ Sjá meira