Stórfyrirtæki slást um Sportacus 12. janúar 2009 04:30 Magnús Scheving er í viðræðum við bæði Sony Pictures og Warner Bros. um framleiðslu á mynd byggðri á Latabæ. Frétttablaðið/GVA
Warner Bros. og Sony, eru meðal þeirra framleiðslufyrirtækja sem Magnús Scheving hefur rætt við um gerð kvikmyndar byggðri á Latabæ. Þetta hefur breska blaðið Daily Telegraph eftir Magnúsi Scheving í frétt sem birtist á laugardaginn. Jafnframt er greint frá því að myndin hafi þegar hlotið nafnið Sportacus sem er enska heitið yfir Íþróttaálfinn. Magnús segir við blaðið að áætlaður kostnaður sé 25 milljónir dollara eða þrír milljarðar íslenskra króna. Telegraph segir jafnframt frá því að Magnús ætli sér ekki að leggja árar í bát þrátt fyrir efnahagshrunið heimafyrir. Hann sé nú á ferðalagi um heiminn við að leita að nýjum fjárfestum til að leggja fyrirtækinu lið. Í fréttinni kemur fram að meðal þeirra fyrstu sem lögðu fé í Latabæjarundrið hafi verið Jón Ásgeir Jóhannesson sem hafi tapað ansi miklu þegar íslensku bankarnir hrundu. Telegraph hefur síðan eftir Magnúsi að hann sé að útfæra þá hugmynd að opna Latabæjar-veitingastaði í London, New York og Tókýo. Það sé stór markaður fyrir slíka staði sem bjóði upp á holla fæðu og skemmtilegt umhverfi fyrir börn. Að sögn Telegraph er ráðgert að hver veitingastaður kosti ekki undir 3,5 milljónum dollara eða 435 milljónum íslenskra króna. - fgg
Mest lesið Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Lífið David Hockney er látinn Menning Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Bíó og sjónvarp Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Fleiri fréttir Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Sjá meira