Calderon skiptir um saksóknara Atli Steinn Guðmundsson skrifar 8. september 2009 08:21 Eduardo Medina Mora, fráfarandi saksóknari.
Forseti Mexíkó hefur leyst saksóknara, sem tók þátt í að stjórna átakinu gegn eiturlyfjahringjum, frá störfum vegna lítils árangurs við að leysa upp slíka hringi. Eduardo Medina Mora saksóknari hefur að mati Felipe Calderon, forseta Mexíkó, ekki haft erindi sem erfiði við að koma háskalegustu mönnum landsins bak við lás og slá í þeirri vargöld sem orðið hefur yfir 13.000 manns að bana á síðustu þremur árum. Ekki er nema von að Calderon vilji að hlutirnir gangi betur þar sem hann hefur sett forsetaembætti sitt að veði í baráttunni við eiturlyfjabarónana og heitið því að knýja til kyrrðar það brim sem ógnað hefur lífi þúsunda íbúa landsins. Þá hefur Calderon hlotið myndarlega styrki frá Bandaríkjunum til að standa undir kostnaði við vopn og þjálfun sérsveita. Um 20 manns á dag liggja í valnum í eiturlyfjatengdum átökum í Mexíkó og er skemmst að minnast þess þegar grímuklæddir byssumenn myrtu 17 manns á meðferðarstofnun í síðustu viku. Verst er ástandið í borginni Ciudad Juarez sem er á landamærunum og skammt frá El Paso í Texas en hún er eins konar hlið fyrir kókaín á leið til Bandaríkjanna. Nýr saksóknari er lítt þekktur fyrrum yfirmaður úr lögreglunni og nú er bara að sjá hvernig hreinsunarstarfið gengur hjá honum.
Mest lesið Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Erlent Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Erlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Innlent Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Erlent „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Innlent ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Innlent Aðallega „karlar að drepa aðra karla“ Innlent Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Innlent Fleiri fréttir Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta Sjá meira