Lífið

Finnur stuðning vegna ástandsins á Íslandi

7. janúar næstkomandi hefst umfangsmikil kynning á íslenskri ferskri bleikju í öllum verslunum Whole Foods Market sem eru 270 að tölu um öll Bandaríkin í umsjá Baldvins Jónssonar sem búsettur er í Washington DC.

Vísir setti sig í samband við Baldvin sem staddur er á Íslandi.

„Allt þetta ár verður bara spennandi eins og það er áætlað en áætlanir eru varasamar og maður verður að lifa í núinu og frá degi til dags."

„Þetta hefur aldrei verið gert áður og verður mjög spennandi því bleikjan hefur aðallega verið seld í veitingahús hingað til," segir Baldvin.

„Allar verslanir þeirra verða skreyttar með fallegu auglýsingaefni um land vort og þjóð, sem sett verður upp í búðunum og mun verða uppi í nokkra mánuði en kynningin sjálf stendur yfir í fjórar vikur."

Umfangsmikil kynning á íslenskri ferskri bleikju verður í öllum verslunum Whole Foods Market í janúar.

Finnur þú fyrir fordómum Bandaríkjamanna í garð Íslands í kjölfar hruns bankanna? „Nei þvert á móti. Miklu fremur stuðning vegna ástandsins sem á líklega uppruna sinn í landi kapítalismans og nú er svo komið að Bandaríkjamenn skulda sennilega meira per íbúa en við," svarar Baldvin.

„Allt þetta ár verður bara spennandi eins og það er áætlað en áætlanir eru varasamar og maður verður að lifa í núinu og frá degi til dags og vera snöggur að taka ákvarðanir. Þetta ár í mínum huga er ár gríðarlegra tækifæra."

Áttir þú góð jól? „Já jólin voru fín eins og alltaf. Hef reynt að skipta jólahaldinu á milli landa á síðustu árum og hefur það verið mjög skemmtilegt en jólin hér heima hafa alltaf sína sérstöðu og núna betri en síðustu ár að mínum dómi. Landinn að ná áttum og sjá að lífið er það sem skiptir mestu máli. Restina getur maður keypt," segir Baldvin brosandi.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.