Móðir nemanda dæmd til að greiða kennara 10 milljónir 26. mars 2009 17:22
Hæstiréttur dæmdi í dag, móður barns í Mýrarhúsaskóla, sem skellti hurð á höfuð kennara með þeim afleiðingum að hann hlaut örorku til að greiða kennaranum 9,7 milljónir króna í bætur vegna slyssins. Þar með staðfesti Hæstiréttur dóm Héraðsdóms Reykjavíkur sem kveðinn var upp í málinu í mars í fyrra. Atvikið átti sér stað árið 2005. Stúlkan, sem var þá ellefu ára gömul, hafði verið í kennslustund þegar hún tók upp á því að fela sig fyrir samnemendum sínum inni í vinnurými kennara sem er inn af skólastofunni. Nemandinn var að flýja einelti frá samnemendum sínum og þurfti kennarinn því að svipast um eftir henni. Þegar kennarinn gægðist inn í vinnurýmið renndi nemandinn rennihurð fyrir opið með þeim afleiðingum að hurðin skall á höfuð kennarans. Kennarinn hlaut 25 prósenta varanlega örorku og krafði móður stúlkunnar og Seltjarnarnesbæ, sem rekur Mýrarhúsaskóla, um 9,7 milljónir króna í miskabætur. Seltjarnarnesbær var hins vegar sýknaður af bótakröfunni í Héraðsdómi og Hæstiréttur tók ekki efnislega afstöðu til þess þáttar málsins. Auk miskabóta var móðirin dæmd til að greiða 1,5 milljónir i málskostnað. Rétt er að taka fram að það kemur í hlut Tryggingarmiðstöðvarinnar, sem er tryggingarfélag móðurinnar, að greiða kennaranum bætur.
Mest lesið Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Bílvelta í Skötufirði Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira