Jarðskjálfti fimm árum eftir flóðbylgju Heimir Már Pétursson skrifar 26. desember 2009 12:07
Þess er nú minnst víða í Asíu að fimm ár eru liðin frá því um 230 þúsund manns fórust í einni mestu flóðbylgju og hamförum í manna minnum. Jarðskjálfti upp á 6,7 á rickter varð undan Malukueyjum í Indónesíu í dag, en engar fréttir hafa borist af manntjóni eða flóðbylgjum vegna hans. Það var á öðrum degi jóla árið 2004 að risavaxin flóðbylgja skall á ströndum rúmlega tíu ríkja við Indlandshaf. Eyðileggingarmáttur flóðbylgjunnar var gífurlegur og hreyf hún með sér allt sem fyrir henni varð; fólk, hús, báta og önnur farartæki. Þegar upp var staðið er talið að um 230 þúsund manns hafi farist, þótt sú tala verði ef til vill aldrei nákvæm. Flestir hinna látnu voru íbúar þeirra landa sem urðu fyrir flóðbylgjunni en einnig gífurlegur fjöldi erlendra ferðamanna víðs vegar að úr heiminum, meðal annars frá Norðurlöndunum. Íslenska þjóðin lagði til farþegaþotu, lækna, hjúkrunarfólk og bráðaliða til að flytja særða og syrgjandi Norðurlandabúa heim til sín og aðstoð barst einnig að frá fjölmörgum ríkjum. Flóðbylgjan myndaðist vegna mesta jarðskjálfta á jörðinni í 40 ár en hann varð neðansjávar og mældist 9,2 á richter kvarða. Aceh hérað á Súmötru varð hvað verst úti í hamförunum og þar eru haldnar bænastundir í moskum héraðsins í dag. Flóðbylgjan þurrkaði út heilu þorpin og sundraði fjölskyldum. Yfir átta þúsund Taílendingar og ferðamenn í Taílandi fórust. Um 48 þúsund manns fórust á ströndum Sri Lanka og Indlands og í Indónesíu fórust yfir 167 þúsund manns.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Fleiri fréttir Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Sjá meira