Innlent

Gleðst yfir verðlækkun á lyfi fyrir MS sjúklinga

Sigurbjörg Arngrímsdóttir, formaður MS félagsins.
Sigurbjörg Arngrímsdóttir, formaður MS félagsins.

„Þessi lækkun er mjög jákvæð. Tysabri er alvöru lyfið," segir Sigurbjörg Arngrímsdóttir, formaður MS félagsins, um ákvörðun Lyfjagreiðslunefndar að lækka verð á Tysabri, lyfi fyrir MS sjúklinga, til samræmis við meðalverð á lyfinu í samanburðarlöndum. Verðlækkunin er að raunvirði um 18,5%. Talsvert hefur verið fjallað um Tysabri undanfarið og aðgengi MS sjúklinga að því.

„Það eru margir sem bíða eftir að komast á þetta lyf," segir Sigurbjörg og bætir við að nú dragi saman í kostnaði á milli eldri lyfja og hins nýja Tysabri. Hátt í 50 MS sjúklingar fá lyfið en Sigurbjörg segir að rúmlega 80 aðrir sjúklingar bíði eftir að komast á Tysabri. Í dag eru þessir einstaklingar á öðrum fyrirbyggjandi lyfjum sem hafa mörg hver alvarlegar afleiðingar á fólk, að sögn Sigurbjargar

„Við erum eini sjúklingahópurinn sem fáum ekki bestu lyfin við okkar sjúkdómi og við það er erfitt að búa," segir Sigurbjörg sem vonast til þess að verðlækkun Lyfjagreiðslunefndar verði til þess að fleiri MS sjúklingar komist á Tysabri lyfið.

- MS sjúklingar sem fá lyfið Tysabri veigra sér við að segja frá því, 22. mars.

- Menntun ræður hver fær MS lyfið Tysabri, 21. mars.

- Vanvirðing fyrir lífinu, 20. mars.


Tengdar fréttir

Ásta geri grein fyrir alvarlegum ásökunum sínum

Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra sagði á Alþingi fyrir stundu að hann færi fram á það að Ásta Möller þingmaður gerði grein fyrir alvarlegum ásökunum sínum gagnvart læknum í landinu. Ögmundur sagðist ætla að ræða ummæli Ástu um MS lyfið Tysabri á fundi heilbrigðisnefndar á miðvikudaginn.

Klínísk sjónarmið ráða því hverjir fá Tysabri lyfið

Björn Zoëga, framkvæmdastjóri lækninga á Landspítala, segir læknisfræðileg sjónarmið og niðurstöður rannsókna ráða því hvaða sjúklingar fái Tysabri meðferð á spítalnum. Ein aðalástæðan fyrir töf eru dauðsföll eftir gjöf lyfsins erlendis. Lyfið er nýtt og hefur hamlandi áhrif á MS sjúkdóminn.

Umtalað lyf fyrir MS sjúklinga lækkar um 18,5%

Lyfjagreiðslunefnd hefur endurskoðað verð á Tysabri, lyfi fyrir MS sjúklinga, til samræmis við meðalverð á lyfinu í samanburðarlöndunum Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. Verðlækkunin er að raunvirði um 18,5%.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×