Þrettándakvöld 13. mars 2009 05:00 Arnar Jónsson í hlutverki sínu í Þrettándakvöldi. Mynd Eddi/þjóðleikhúsið Þrettándakvöld
Þjóðleikhúsið frumsýnir Þrettándakvöld – eða Hvað sem þér viljið eftir William Shakespeare í kvöld á stóra sviðinu. Sýningin er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og Nemendaleikhúss en leikstjóri er Argentínumaðurinn Rafael Bianciotto. Þrettándakvöld var fyrsta verk Shakespeare sem flutt var á Íslandi hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1926 og öðru sinni hjá Þjóðleikhúsinu 1967 en hafði þá verið leikið bæði á Herranótt 1960 og hjá Leikfélagi Akureyrar 1964. Þessi blandni gamanleikur Shakespeares segir af ástleitnum greifa sem fellir hug til meyjar af aðalsættum en hún vill ekki þýðast nokkurn mann því hún syrgir bróður sinn. Önnur systkini, skipreka, verða síðan til þess að stokka rækilega upp í félagslífinu með tilheyrandi ástarfléttum, misskilningi og brellum. Og í kringum alla hirðina dansa fíflið Fjasti og ráðsmaðurinn Malvólíó sem er hafður að ginningarfífli í leiknum. Leikstjórinn Rafael Bianciotto er þekktur fyrir grímuvinnu, commedia dell’ arte og trúðatækni. Hann leikstýrði rómaðri uppsetningu á Dauðasyndunum; er ættaður frá Argentínu en hefur einkum starfað í Frakklandi. Arnar Jónsson leikur Malvólíó og er þetta í fyrsta sinn sem hann leikur eitt höfuðhlutverka Shakespeares – fyrir utan þátttöku í Hamlet 1964 meðan hann var enn við nám. Hafa leikhúsáhorfendur lengi furðað sig á því ráðslagi íslenskra leikhússtjóra. Hlutverk Malvólíós er í þessari sýningu lagt undir stílfærðan trúðsleik þótt hlutverkið bjóði vissulega upp á sálfræðilega túlkun sem sveiflast frá hinu skoplega til hins harmræna. Arnar er kunnugur tækni grímunnar. Hann segir það hið besta mál að nemendur í Listaháskólanum komi inn á stóra svið Þjóðleikhússins og vanir túlkendur hins talaða orðs fyrir stórum sal geti leiðbeint þeim í flutningi: „Þau geta ekki treyst á þennan metóðu-kvikmyndaleik sem þau eru mest fyrir.“ Gríman neyði leikarann að kjarna stílfærslunnar, í sviðsetningunni séu leikmynd og búningar einfaldaðir sem oft einkenni sviðsetningar sem noti grímuna. Hismið falli af kjarnanum. Eggert Þorleifsson, Guðrún Snæfríður Gísladóttir og Ragnheiður Steindórsdóttir leika í uppfærslunni ásamt útskriftarárgangi Nemendaleikhúss Listaháskólans. Um leikmynd og búninga sýningarinnar sér Helga I. Stefánsdóttir, grímugerð annast Högni Sigurþórsson. pbb@frettabladid.is
Mest lesið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp Einar og Milla eiga von á dreng Lífið Fleiri fréttir Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati „Ég fæddist fyrir þessa stund“ Sögulegt parhús í Hlíðunum Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Sjá meira