Davíð Oddsson: Gætum stefnt í eilífðar fátækt 4. júlí 2009 17:26 „[...]
Þetta er ótrúlegt klúður sem stjórnvöld hafa komið landinu í og við gætum stefnt hér hraðbyr í einhverja eilífðar fátækt," segir Davíð Oddsson fyrrum forsætisráðherra til þrettán ára og nú síðast Seðlabankastjóri í viðtali við Agnesi Bragadóttur í sunnudagsblaði Morgunblaðsins sem kom út í kvöld. Hann segir í viðtalinu að yfirlýsingar Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, þá utanríkisráðherra, svo síðar Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra og Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, hafa skaðað málstað Íslendinga gríðarlega í Icesave deilunni. Það hafi þau gert með því að lofa að standa skil á Icesave-skuldunum. Davíð fer þó engum orðum um ábyrgð Geirs H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra Sjálfstæðisflokksins í Icesave deilunni. Hinsvegar birtist bréf sem Davíð segist hafa sent Geir þann 22. október. Þar spyr hann hvort stjórnvöld ætli virkilega að taka á sig Icesave-skuldaklafann án þess að kanna lagaheimildir til hlítar. Hann líkir Icesave-skuldinni við að borga reikninga nágrannans án þess að mótmæla að sér beri þess nokkur skylda. Davíð tók hinsvegar fram í viðtalinu að kæmust dómstólar að þeirri niðurstöðu að þjóðin skyldi borga, þá ætti ríkið að standa við sínar skuldbindingar. Þá sagði hann skjöl til í utanríkisráðuneytinu frá núverandi seðlabankastjóra Seðlabanka Evrópu sem sýndi fram á lagaleg rök fyrir því að allsherjarhrun, líkt og gerðist á Íslandi, á ekki við varðandi innistæðutryggingakerfið. Ekki náðist í núverandi utanríkisráðherra, Össur Skarphéðinsson við vinnslu fréttarinnar.
Tengdar fréttir Davíð vill ekki borga Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra og nú síðast Seðlabankastjóri, segist ekki vilja greiða Icesave-skuldir án þess að reynt verði að fara dómstólaleiðina á undan. Þetta kemur fram í viðtali sem Agnes Bragadóttir tók við hann í sunnudagslaði Morgunblaðsins. 4. júlí 2009 16:59 Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent Stúlkan fannst heil á húfi Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Fleiri fréttir Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Sjá meira
Davíð vill ekki borga Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra og nú síðast Seðlabankastjóri, segist ekki vilja greiða Icesave-skuldir án þess að reynt verði að fara dómstólaleiðina á undan. Þetta kemur fram í viðtali sem Agnes Bragadóttir tók við hann í sunnudagslaði Morgunblaðsins. 4. júlí 2009 16:59