Innlent

Herjólfi seinkar en siglir þó

Herjólfi seinkar en siglir þó.
Herjólfi seinkar en siglir þó.

Seinni ferð Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs í dag fellur niður vegna bilunar í annarri aðalvél ferjunnar.

Bilunin kom í ljós þegar leggja átti af stað frá Eyjum upp úr klukkan átta í morgun. Þá var ákveðið að sigla til Þorlákshafnar á einni vél, þótt hin væri biluð, en fella niður seinni ferðina, samkvæmt upplýsingum frá stýrimanni í brú.

Haft var samband við farþega sem bókað áttu far með seinni ferðinni og þeim boðið að taka fyrri ferðina og varð það til þess að brottför tafðist frá Eyjum til klukkan níu.

Herjólfur fór vegna bilunarinnar hægar en venjulega og tók siglingin um 30 mínútum lengri tíma.

Til stóð að Herjólfur héldi frá Þorlákshöfn klukkan tólf á hádegi en brottför var seinkað til klukkan tvö meðan beðið var varahlutar.

Nú laust eftir klukkan tvö var Herjólfur enn í Þorlákshöfn og varahluturinn ókominn og óljóst hvenær landfestar yrðu leystar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×