Brúarsmíði í uppnámi vegna vantrausts á íslenskum bönkum 4. júlí 2009 14:44
Brúarsmíði yfir Mjóafjörð í Ísafjarðardjúpi er í uppnámi þar sem verktakafyrirtækið KNH ehf., þarf að staðgreiða fyrir tækjabúnaði þar sem breskt fyrirtæki treystir ekki íslenskum bönkum. Þetta kemur fram á ísfirska fréttavefnum bb.is. Þar segir að tækjabúnaðurinn sé nauðsynlegur til þess að spenna brúna áður en hún verður steypt. Babb sé komið í bátinn því breska fyrirtækið neitar að stunda viðskipti við Íslendinga nema gegn staðgreiðslu og til þessa hafa þeir ekki tekið gilda kvittun fyrir fyrirframgreiðslunni frá íslenskum banka. Þetta gerir það að verkum að óvíst er hvort brúin verði opnuð fyrir stærstu ferðmannahelgi ársins, Verslunarmannahelgina. En ætlunin er að opna hana rétt fyrir þá helgi. Sævar Óli Hjörvarsson framkvæmdastjóri KNH segir sitt fyrirtæki vera búið að borga fyrir þjónustuna, en ekkert hafi heyrst frá fyrirtækinu og því ekki vitað hvenær von er á starfsmanninum og búnaðinum. „Það tekur fimm til sjö daga fyrir peninga að berast á leiðarenda í gegnum bankakerfið eins og það er í dag. En við fáum ekki einu sinni svör frá fyrirtækinu fyrr en það er búið að telja peningana," segir Sævar Óli. Þegar stangirnar í brúna, sem nú þarf að strekkja, voru keyptar af breska fyrirtækinu á síðasta ári, voru þær sendar til landsins áður en þær voru greiddar. Nú er KNH stillt upp við vegg af breska fyrirtækinu, að sögn Sævars Óla. „Það er ekkert traust á Íslendingum í dag. Ísland er bara algjört núll úti í heimi," segir hann.
Mest lesið „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Erlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Fleiri fréttir Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Sjá meira