Tveggja mánaða kvóti klárast á rúmri viku Kristján Már Unnarsson. skrifar 4. júlí 2009 18:49
Fiskistofa áætlar að nýútgefinn strandveiðikvóti Norðvesturlands, sem átti að endast í tvo mánuði, klárist um næstu helgi. Æðisgengið kapphlaup virðist hafið um strandveiðarnar. Ekki eru nema níu dagar frá því Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra gaf út reglugerð um frjálsar strandveiðar og hefur Fiskistofa nú gefið út 368 leyfi til veiðanna. Þótt bátarnir hafi aðeins getað veitt í fimm virka daga bera aflatölur með sér að mikið kapphlaup sé nú hafið um þann takmarkaða afla sem ætlaður er í strandveiðarnar en það eru tæplega 4.000 tonn. Menn vita sem er að fyrstur kemur fyrstur fær og að veiðarnar verða stöðvaðar þegar kvótinn er búinn. Þó má hver bátur að hámarki koma með 800 kíló að landi á dag og aðeins fimm daga vikunnar. Sú ákörðun að deila kvótanum niður á þrjá sumarmánuði og niður á fjögur veiðisvæði virðist ekki duga til að hindra kapphlaupið. Þannig hafa 103 bátar á svæði A, sem nær frá Snæfellsnesi um Vestfirði og að Skagafirði, þegar landað yfir 200 tonnum af slægðum þorski, og eru þó ekki allir byrjaðir veiðarnar. Svo hratt gengur á kvóta norðvestursvæðisins að Fiskistofa áætlar að heimilaður afli þess fyrir tvo mánuði, júní og júlí, geti klárast um næstu helgi, eftir aðeins tíu veiðidaga. Það þýðir að allir á því svæði verða að leggja árar í bát og bíða þangað til ágústmánuður gengur í garð og hefja þá kapphlaupið á ný um kvóta ágústmánaðar, sem miðað við þessa ákefð gæti klárast á fáum dögum.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Fleiri fréttir Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Sjá meira