Fólkið talið hafa kveikt í með bensíni Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 6. júní 2009 12:11 Húsið á horni Langholtsvegar og Kleppsvegar er illa farið. Mynd/Egill
Þrír karlmenn og ein kona voru handtekin í morgun grunuð um að hafa kveikt í einbýlishúsi við Kleppsveg með bensíni. Karlmaður á miðjum aldri forðaði sér út úr brennandi húsinu sem nánast eyðilagðist í eldinum. Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að horni Langholtsvegar og Kleppsvegar upp úr klukkan hálf níu í morgun vegna elds í bíslagi einbýlishúss. Fjórum mínútum síðar var slökkviliðið komið á vettvang og hafði eldurinn þá náð að læsa sig inn í mitt húsið. Eldurinn logaði þá glatt í bíslaginu. Einn karlmaður á miðjum aldri var í húsinu en hann hafði komist út af eigin rammleik áður en lögregla og slökkvilið kom á staðinn. Ágætlega gekk að slökkva eldinn en þó var töluverð vinna að slökkva glæður í þaki og útveggjum. Húsið er bárujárnsklætt og úr timbri en forskalað að hluta og að sögn slökkviliðs er það nánast ónýtt. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu voru þrír karlar og ein kona - öll á þrítugsaldri - handtekin á staðnum í morgun, grunuð um aðild að íkveikjunni. Þau voru á vettvangi þegar lögregla kom á staðinn, á vappi kringum bíl og í stympingum fyrir utan húsið. Vitni sá til þeirra með bensínbrúsa. Ekki er vitað hvort fólkið þekkti íbúann.
Tengdar fréttir Eldur í húsi á Kleppsvegi - þrír handteknir Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út vegna elds í einbýlishúsi á Kleppsvegi á níunda tímanum í morgun. Húsið mun hafa verið mannlaust. Þrír karlmenn hafa verið handteknir grunaðir um íkveikju, að sögn lögreglu sem vildi ekki tjá sig frekar um málið að svo stöddu. 6. júní 2009 08:57 Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Erlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent Fleiri fréttir „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Sjá meira
Eldur í húsi á Kleppsvegi - þrír handteknir Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út vegna elds í einbýlishúsi á Kleppsvegi á níunda tímanum í morgun. Húsið mun hafa verið mannlaust. Þrír karlmenn hafa verið handteknir grunaðir um íkveikju, að sögn lögreglu sem vildi ekki tjá sig frekar um málið að svo stöddu. 6. júní 2009 08:57