Innlent

Frekari niðurskurður í heilbrigðiskerfinu - hugsanlega uppsagnir

Telma Tómasson. skrifar

Enn frekari niðurskurður í heilbrigðiskerfinu vofir yfir næstu mánuði og er umtalsverð óvissa í rekstri Landspítalans. Uppsagnir eru ekki útilokaðar.

Gert var ráð fyrir alls um 7 til 8 milljarða króna sparnaði í heilbrigðiskerfinu, frá því sem áætlað var á fjárlögum fyrir þetta ár. Endanleg tala fyrir næsta ár er ekki ljós, en hins vegar liggja fyrir tillögur um frekari niðurskurð á borði heilbrigðisráðherra, sem þegir þunnu hljóði um þær, enn sem komið er.

Farið er út í öll horn og niður í minnstu einingar í sparnaðaráformum, samkvæmt heimildum fréttastofu. Starfsemi Landspítalans - stærstu heilbrigðisstofnun landsins - hefur verið löguð eins og hægt er að ástandinu, en erfitt reynist að kortleggja nánustu framtíð.

Björn Zoega, staðgengill forstjóra Landspítalans, segir starfsfólk hafa staðið vaktina við erfiðar aðstæður og vel það, en forðast verði í lengstu lög að niðurskurður komi niður á sjúklingum jafnvel þótt reksturinn sé kominn nálægt þolmörkum.

Fundur verður haldinn með starfsmönnum Landspítalans í næstu viku, þar sem stjórnendur munu upplýsa um þær aðgerðir sem grípa þarf til á næstunni í rekstri spítalans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×