Slasaðist á auga þegar iPhone sprakk 13. ágúst 2009 12:08
Átján ára karlmaður í Frakklandi slasaðist á auga þegar iPhone sími kærustu hans sprakk við venjulega notkun. Fleiri dæmi eru um að iPhone tæki hafi sprungið. Yfirvöld í Japan hafa einnig hafið rannsókn á því af hverju blossar stóðu út úr tónhlöðu af gerðinni iPod nano meðan hann var í hleðslu. Franska blaðið La Provence sagði frá því á þriðjudaginn að átján ára strákur, Romain, búsettur í Aix-en-Provence í Suður-Frakklandi hefði fengið iPhone síma kærustu sinnar lánaðan. Suðað hafi í símanum áður en hann hafi splundrast. Í viðtali við blaðið segir Romain að hann hafi fengið glerbrot í annað augað en síminn hafi verið þrjátíu sentimetra fjarlægð frá andliti hans. Móðir Romain sagði í samtali við AFP fréttastofnun að hann hefði ekki slasast alvarlega en þrátt fyrir það væri hann að íhuga málsókn á hefur Apple tölvurisanum sem framleiðir iPhone símtækin. Móðir Romain og systir hans segjast nú geyma iPhone símana sína í kassa úr plexígleri fari svo að þeir springi líka. Eftir að fréttin um iPhone sprenginguna var birt í La Provence kom annar iPhone notandi fram í Marseille í Frakklandi og greindi frá því að skjárinn á sínu símtæki hefði brotnað án nokkurra sjáanlegra skýringa þegar hann var í miðju símtali. Franska fréttastöðin France 24 hafði samband við fulltrúa Apple í Frakklandi og engin svör munu hafa fengist þaðan. Bæði AFP og Reuters fréttastofurnar hafa leitað viðbragaða frá Apple án árangurs. Fregnir af bilunum sem þessum eru ekki einskorðaðar við Frakkland. Fimmtugur karlmaður í Liverpool á Englandi greindi Lundúnablaðinu Times fyrir skömmu frá því að hann hefði kastað iPhone Touch tæki ellefu ára dóttur sinnar í garðinn við hús þeirra andartökum áður en það sprakk. Ken Staanborough segir að tækið hafi byrjað að suða og hitnað í höndunum á honum og svo hafi virst sem gufa stigi upp frá því áður en hann hafi hent því út. Hann segir að Apple hafi boðist til að endurgreiða tækið gegn því að feðginin skrifuðu undir samning um að greina ekki frá þessu opinberlega. Samkvæmt France 24 er vitað um fleiri tilvik sem þessi í Bandaríkjunum Bretlandi og Japan en fulltrúar Apple ætíð neitað að tjá sig. Einnig greindir franska stöðin M6 frá því að japönsk yfirvöld hafi í fyrra fyrirskipað rannsókn á því afhverju blossar hafi gengið út úr iPod nano hlaðvarpa frá Apple meðan hann var í hleðslu. Eigandi tækisins, sem býr í Tokyo tilkynnti um það.
Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira