Jóhanna tekur til varna í grein á vef FT Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 13. ágúst 2009 19:53 Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og þingmaður Samfylkingar í ræðustól Alþingis.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra gagnrýnir beitingu hryðjuverkalaganna og þrýsting Hollendinga vegna láns Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í varnargrein sem birtist á vef Financial Times rétt fyrir klukkan sjö í kvöld. Fyrirsögn greinarinnar er „Íslendingar eru reiðir, en munu færa fórnir," en þar útskýrir Jóhanna þá stöðu sem Íslendingar eru í. Hún kemur inn á beitingu Bresku ríkisstjórnarinnar á hryðjuverkalögum, þar sem Landsbankinn var settur í hóp með alræmdum hryðjuverkasamtökum. Hún bendir á að engin fullnægandi skýring hafi verið gefin á þessum aðgerðum. Þá segir Jóhanna einnig frá fréttum þess efnis að Hollendingar hafi lagst gegn lánveitingum AGS til landsins til að tryggja stöðu sína í Icesave málinu. Þessar aðgerðir hafi gefið þá mynd að embættismenn innan fjármálaráðuneyta landanna tveggja hafi notað stöðu sína gegn veikari aðila þegar samið var um Icesave. Því sé erfitt að sannfæra Alþingi og þjóðina um að samkomulag um Icesave reikningana sé óhjákvæmilegt. Til skoðunar sé að setja fyrirvara við samninginn til að tryggja afkomu og fullveldi landsins. Í greininni aftekur Jóhanna þó að Íslendingar kenni Bretum og Hollendingum um allt sem aflaga fer, líkt og í veðri hefur verið látið vaka í erlendum fjölmiðlum. Hins vegar segir hún þjóðina, sem ekki finnist hún ábyrg fyrir alheimsfjármálakreppunni, reiða yfir að þurfa að taka á sig risavaxnar skuldbindingar einkabanka. Hún segir Íslendinga hins vegar reiðubúna að færa fórnir til að tryggja samband og viðskipti við umheiminn. Í niðurlagi greinarinnar segist Jóhanna vona að þjóðir stórra landa á borð við Bretland og Holland átti sig á þeim varanlegu áhrifum sem yfirvöld þeirra geti haft á smáríki á borð við Ísland á erfiðum tímum.
Mest lesið Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Erlent Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Erlent Artemis II er á heimleið Erlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Innlent Fleiri fréttir Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Rotaðist eftir að hafa fokið á höfuðið Flugmönnum leyfist að gera mistök í flughermi „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Rúta valt á Kjalarnesi Fastir bílar, fall af hestbaki og þakkjölur við það að losna Tuttugu þúsund á hvern illa búinn hjólbarða Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Sjá meira