Ummæli Davíðs ómakleg og óverðskulduð 29. mars 2009 12:46 Geir H. Haarde
Geir. H. Haarde formaður Sjálfstæðisflokksins sagði á landsfundi Sjálfstæðiflokksins í morgun að ummæli Davíðs Oddssonar í gær í garð Endurreisnarnefndar flokksins og formanns hennar væru ómakleg og óverðskulduð. Geir kvaddi sér óvænt hljóðs til þess að mótmæla ummælum Davíðs. Þetta kemur fram á Eyjunni í dag. Í ræðu Davíðs Oddssonar í gær vék hann orðum sínum að skýrslu Endurreisnarnefndar flokksins sem hann sagði hrákasmíði. Hann sagðist einnig sjá eftir þeim trjágróðri sem notaður var í að prenta skýrsluna. Einnig sagði hann skjóta skökku við að sá sem ætti að semja siðareglur fyrir Sjálfstæðisflokkinn væri sami maður og var ráðinn framkvæmdarstjóri Samtaka atvinnulífsins af Jóni Ásgeiri, Hreiðari Má og Hannesi Smárasyni. þar átti hann við Vilhjálm Egilsson. Geir sagði í ræðu sinni í morgun að á sínum tíma hefði hann gefið Vilhjálmi Egilssyni bestu meðmæli í starfið en Vilhjálmur var þá ráðuneytisstjóri. Hann sagði ummæli Davíðs ómakleg og óverðskulduð. Geir lagði einnig til að ályktun endurreisnarnefndar yrði borin upp á ný fyrir fundinn til samþykktar til að árétta stuðning landsfundarins við efni hennar og nefndina. Var það samþykkt með dynjandi lófataki.
Tengdar fréttir Ræða Davíðs í heild sinni - myndband Davíð Oddsson sagði meðal annars í merkilegri ræðu sinni á landsfundi Sjálfstæðisflokksins að ekki væri við nýjan seðlabankastjóra að sakast þó hann væri ókunnugur öllu sem hér hefði verið að gerast undanfarið. Það hafi hinsvegar ekki verið traustvekjandi þegar hann sagðist ekki muna eftir því hvenær fyrst var rætt við hann um starfið á fyrsta blaðamannafundi sínum. Það væri í senn sérkennilegt og mjög alvarlegt. 28. mars 2009 19:00 Segir ummæli Davíðs ómakleg Vilhjálmur Egilsson formaður samtaka atvinnulífsins segir ummæli Davíðs Oddssonar á landsfundi flokksins hafa verið ómakleg en hann láti þau ekki hafa áhrif á sig. Davíð sagði skýrslu Endurreisnarnefndar flokksins sem Vilhjálmur stýrði vera hrákasmíð og hann sæi eftir þeim trjágróðri sem notaður var í prentun skýrslunnar. Vilhjálmur segir að með þessu sé Davíð að gera lítið úr þeim 80 einstaklingum sem stóðu að skýrslunni. 28. mars 2009 19:07 Líkti starfslokum sínum við krossfestingu Krists Davíð Oddsson hélt ræðu á landsfundi Sjálfstæðisflokksins fyrir stundu sem endaði með dúndrandi lófataki viðstaddri. Davíð fór um víðan völl og talaði meðal annars um aðgerðarleysi minnihlutastjórnarinnar auk þess sem hann sagði Björgvin G. Sigurðsson eiga drengjamet í að leka upplýsingum í fjölmiðla. Hann sagði Jóhönnu Sigurðardóttur líta dálítið út eins og álfur út úr hól og ræddi einnig um starfslok sín í Seðlabankanum, sem hann líkti við krossfestingu Krists. 28. mars 2009 17:05 Mest lesið Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Skjálftahrina úti af Reykjanesi Innlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Skothvellir við Hvíta húsið Erlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Innlent Fleiri fréttir „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Sjá meira
Ræða Davíðs í heild sinni - myndband Davíð Oddsson sagði meðal annars í merkilegri ræðu sinni á landsfundi Sjálfstæðisflokksins að ekki væri við nýjan seðlabankastjóra að sakast þó hann væri ókunnugur öllu sem hér hefði verið að gerast undanfarið. Það hafi hinsvegar ekki verið traustvekjandi þegar hann sagðist ekki muna eftir því hvenær fyrst var rætt við hann um starfið á fyrsta blaðamannafundi sínum. Það væri í senn sérkennilegt og mjög alvarlegt. 28. mars 2009 19:00
Segir ummæli Davíðs ómakleg Vilhjálmur Egilsson formaður samtaka atvinnulífsins segir ummæli Davíðs Oddssonar á landsfundi flokksins hafa verið ómakleg en hann láti þau ekki hafa áhrif á sig. Davíð sagði skýrslu Endurreisnarnefndar flokksins sem Vilhjálmur stýrði vera hrákasmíð og hann sæi eftir þeim trjágróðri sem notaður var í prentun skýrslunnar. Vilhjálmur segir að með þessu sé Davíð að gera lítið úr þeim 80 einstaklingum sem stóðu að skýrslunni. 28. mars 2009 19:07
Líkti starfslokum sínum við krossfestingu Krists Davíð Oddsson hélt ræðu á landsfundi Sjálfstæðisflokksins fyrir stundu sem endaði með dúndrandi lófataki viðstaddri. Davíð fór um víðan völl og talaði meðal annars um aðgerðarleysi minnihlutastjórnarinnar auk þess sem hann sagði Björgvin G. Sigurðsson eiga drengjamet í að leka upplýsingum í fjölmiðla. Hann sagði Jóhönnu Sigurðardóttur líta dálítið út eins og álfur út úr hól og ræddi einnig um starfslok sín í Seðlabankanum, sem hann líkti við krossfestingu Krists. 28. mars 2009 17:05