Microsoft skipti um höfuð manns í auglýsingu Atli Steinn Guðmundsson skrifar 27. ágúst 2009 08:11 Auglýsingin - fyrir og eftir. MYND/Microsoft/CNET
Hugbúnaðarfyrirtækið Microsoft hefur beðist afsökunar á að hafa sýnt lélega dómgreind með því að breyta auglýsingu fyrirtækisins. Glöggir menn ráku augun í það á dögunum að auglýsingu frá Microsoft hafði verið breytt á snyrtilegan og hljóðlátan hátt í Photoshop eða öðru ámóta forriti. Auglýsingin er á vefnum og sýnir fund viðskiptamanna. Í fyrri útgáfunni situr miðaldra þeldökkur maður í miðjunni en í breyttri útgáfu auglýsingarinnar hefur verið skipt um höfuð á manninum og höfuð hvíts manns sett í staðinn. Annað er þó óbreytt og sést ekki betur en að svört hönd standi enn þá fram úr erminni. Talsmenn Microsoft fölnuðu upp þegar flett var ofan af þessu og gátu ekki aðrar skýringar gefið en auglýsingunni hefði verið beint að pólskum markaði og þar í landi væru flestir hvítir. Þó væri verið að rannsaka með hvaða hætti þessi sérkennilegu skipti hefðu átt sér stað og væri hér um augljós markaðsmistök að ræða. Hefur fyrirtækið sent frá sér einlæga afsökunarbeiðni í kjölfar málsins sem þykir allt hið vandræðalegasta fyrir hugbúnaðarrisann.
Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira