Innlent

Ljósmæður ánægðar með Ögmund

Guðlaug Einarsdóttir er formaður Ljósmæðrafélags Íslands.
Guðlaug Einarsdóttir er formaður Ljósmæðrafélags Íslands.
Stjórn Ljósmæðrafélags Íslands fagnar ákvörðun Ögmundar Jónassonar, heilbrigðisráðherra, að halda fæðingaþjónustu óskertri á Suðurlandi og Suðurnesjum, enda vafasamt að skerðing þeirrar þjónustu hefði haft í för með sér raunverulegan sparnað.

Stjórnin fagnar jafnframt samráði heilbrigðisyfirvalda við nærsamfélag og fagfólk. „Ljósmæður munu hér eftir sem endranær leggja sitt að mörkum til að standa vörð um þann framúrskarandi árangur sem áunnist hefur í uppbyggingu þjónustu við barnshafandi fjölskyldur í landinu undanfarna áratugi," segir í ályktun frá stjórn félagsins.






Tengdar fréttir

Sunnlendingar mótmæla niðurskurði

Ögmundi Jónassyni, heilbrigðisráðherra, verður síðar í dag afhent um fjögur þúsund undirskriftir Sunnlendinga sem mótmæla fyrirhugaðri skerðingu á heilbrigðisþjónustu á Suðurlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×