Innlent

Þyrla Landhelgisgæslunnar sækir slasaða skipverja

Þyrla Landhelgisgæslunnar. Myndin tengist ekki fréttinni.
Þyrla Landhelgisgæslunnar. Myndin tengist ekki fréttinni. Mynd/ Vilhelm

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst í kvöld beiðni um aðstoð frá línuveiðiskipinu Valdimar GK-195 vegna óphapps sem varð þegar skipverjar hugðust sjósetja léttabát skipsins um 90 sjómílur norð-vestur af Öndverðanesi.

Valdimar er um 600 tonn að stærð og 38 m að lengd. Læknir á þyrluvakt Landhelgisgæslunnar mat það svo að meiðsli tveggja skipverja sem voru í léttabátnum væru þess eðlis að ástæða væri til að sækja þá með þyrlu til aðhlynningar á sjúkrahúsi.

Skipstjóri Valdimars var beðinn um að halda í átt að Snæfellsnesi. Þyrla Landhelgisgæslunnar fór í loftið frá Reykjavík tuttugu mínútur yfir níu og önnur skömmu seinna til að vera til taks öryggisins vegna á Rifi á Snæfellsnesi. Fyrri þyrlan áætlar að vera yfir Valdimar um hálfellefu. Líðan skipverjanna tveggja mun vera eftir atvikum góð.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×