Indefence ber ásökun til baka 15. desember 2009 06:00 Undirskriftir Um 100 rangar undirskriftir voru skráðar á vef Indefence á föstudag.
Forsvarsmenn Indefence-hópsins hafa borið til baka ásakanir um að starfsmenn Fréttablaðsins hafi verið meðal þeirra sem staðið hafi að árás á undirskriftasöfnun hópsins á föstudag. „Talsmaður Indefence hljóp augsýnilega illa á sig í þessum yfirlýsingum um þátt Fréttablaðsins, eins og aðrir sem runnu í far hans við samsæriskenningasmíðarnar. Það hefði nú verið kurteislegra ef Indefence hefði beðist afsökunar á þessu gönuhlaupi sínu,“ segir Jón Kaldal, ritstjóri Fréttablaðsins. Í yfirlýsingu frá hópnum kemur fram að um 100 rangar undirskriftir hafi verið skráðar á nokkrum klukkustundum á föstudag. Við því brást einn forsvarsmaður söfnunarinnar með því að segja í samtali við vefmiðilinn mbl.is að þar virtist vera um tilraun að ræða til að gera söfnunina ótrúverðuga, og að furðu hafi vakið að rangar skráningar hafi komið frá tölvum í Stjórnarráðinu, Hagstofu Íslands, Ríkisútvarpinu og Fréttablaðinu. Með yfirlýsingu Indefence er staðfest að aðeins hafi verið um eina skráningu að ræða frá Fréttablaðinu, og að skýring blaðamanns sé tekin „fullkomlega gild“. Blaðamaðurinn var að vinna frétt um undirskriftasöfnunina og setti inn nafnið „XXXXXX“ með augljóslega rangri kennitölu til að athuga hvort vefsíðan tæki við skráningum með kennitölu sem ekki endaði á níu eða núlli, eins og allar íslenskar kennitölur einstaklinga. Frétt um málið var birt í Fréttablaðinu á laugardag. „XXXXXX“ var notað til að ekki færi á milli mála að ekki væri um raunverulega skráningu að ræða. Um 34 þúsund undirskriftir voru komnar á lista Indefence í gærkvöldi. Að sögn forsvarsmanna hópsins verður listinn samkeyrður við þjóðskrá að söfnun lokinni. - bj
Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Erlent „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Fleiri fréttir Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Sjá meira