Fyrrum mafíuforingi handtekinn fyrir ölvun Atli Steinn Guðmundsson skrifar 16. desember 2009 07:55 Ray Liotta, til hægri, í hlutverki Henry Hill.
Mafíósinn Henry Hill, sem Ray Liotta gerði ódauðlegan í kvikmyndinni Goodfellas, var handtekinn fyrir ölvun í St Louis í Kaliforníu á sunnudaginn. Ætla mætti að Hill, sem nú er 66 ára gamall, hefði verið handtekinn fyrir alvarlegra brot en að vera drukkinn á almannafæri en svo er ekki þar sem mafíudagar hans eru löngu liðnir. Raunar snerist Hill á sveif með alríkislögreglunni FBI og gerðist uppljóstrari en kvikmynd Martin Scorsese, Goodfellas, frá 1990 fjallar einmitt öðrum þræði um það hlutverk hans. Það var Ray Liotta sem túlkaði Henry Hill af listfengi í myndinni sem vakti verðskuldaða athygli, var tilnefnd til sex Óskarsverðlauna og hlaut ein auk BAFTA-verðlaunanna og í heild 32 annarra verðlauna á sviði kvikmyndalistarinnar sem verður að teljast nokkuð gott. Henry Hill fæst nú við listmálun og var einmitt viðstaddur sýningu á verkum sínum en hafði fengið sér í aðra tána eins og margir góðir listamenn gera til að auðga andann. Eitthvað auðgaðist andi Hill meira en lögregluyfirvöldum á svæðinu þóknaðist og var hann að lokum leiddur á brott í járnum. Hann sagðist í viðtali við AP-fréttastofuna í gær ekki muna mikið eftir atburðum helgarinnar en jú jú, hann hafði kannski fengið sér einu glasi of mikið. „Hefur þú ekki einhvern tímann lent í því líka?" spurði Hill blaðamann AP að skilnaði.
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Innlent Fleiri fréttir Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Sjá meira