Kostnaður við Arnkötludalsveg langt fram úr áætlun 12. júní 2009 18:52
Kostnaður við lagningu nýja vegarins um Arnkötludal stefnir í að fara 40 til 50 prósent fram úr áætlun. Til stóð að hleypa umferð á veginn fyrir síðustu áramót en nú vonast verktakinn til að það gerist öðru hvoru megin við verslunarmannahelgi.Arnkötludalsvegur er hugsaður sem framtíðarleið fyrir umferðina milli Ísafjarðar og Reykjavíkur og því bíða margir þess með eftirvæntingu að fá að aka þarna í gegn. Gerð þessa 25 kílómetra vegar hófst fyrir tveimur árum, vorið 2007, og nú vinna þar um 35 manns á vegum verktakans, Ingileifs Jónssonar. Vegurinn liggur að stórum hluta um tvo dali en fer þó á kafla upp í 370 metra hæð. Þaðan fæst mikið útsýni, til suðurs yfir Gilsfjörð og til norðurs yfir Steingrímsfjörð.Á ýmsu hefur þó gengið. Deilur urðu þegar Vegagerðin breytti legu vegarins efst í Gautsdal og flutti hann fram á fossbrún. Þá hefur þurft að byggja veginn meira upp en áætlað var. Loks tafðist verkið þegar í ljós kom að fyllingarefni, sem Vegagerðin valdi, reyndist ónothæft og þurfti að moka því burtu af löngum vegarkafla sem búið var að sturta því í. Reikningur verktakans verður því drjúgt hærri en þær 660 milljónir króna sem tilboðið var upp á, kostnaður stefnir nú vel yfir milljarð og gæti endað í 1.200 milljónum, segir Ingileifur Jónsson verktaki, en það væri 50 prósentum meira en verðbætt tilboðið.Spurður hvenær eigi að opna veginn svarar Ingileifur að það verði seinniparts sumars, öðru hvoru megin við verslunarmannahelgi.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Sjá meira