Kona handtekin vegna Bernanke-málsins Atli Steinn Guðmundsson skrifar 2. september 2009 07:54 Bernanke-hjónin. MYND/Reuters
Búið er að handtaka manneskju sem stal veski eiginkonu bandaríska seðlabankastjórans. Fréttastofan greindi frá því á dögunum að hópur svokallaðra auðkennaþjófa hefði komist yfir persónuskilríki Önnu Bernanke, eiginkonu Bens Bernanke, seðlabankastjóra Bandaríkjanna, og notað þau til að taka 900 dollara út af reikningi á hennar nafni. Skilríkin voru í veski sem stolið var á meðan Anna sat á kaffihúsi í Washington. Á mánudagskvöld handtók lögregla í Miami unga konu sem grunuð er um verknaðinn. Konan er heróínfíkill og var gripin á hótelherbergi með heróín og fjöldann allan af hárkollum sem hún notaði til að taka á sig hin ýmsu gervi. Hin handtekna tilheyrir glæpahring sem sérhæfir sig í auðkennastuldi og hefur svikið milljónir dollara út af reikningum mörg hundruð fórnarlamba um gervöll Bandaríkin með því að komast yfir persónuupplýsingar þeirra og hagnýta sér þær. Þetta er níunda manneskjan úr þessum tiltekna glæpahring sem lögreglan gómar og er sérgrein hennar að dulbúa sig sem fórnarlömb þjófanna og fara svo með skilríki þeirra í bankann til að freista þess að ná peningum af reikningum þeirra. Lögregla segist hafa að minnsta kosti sex manns til viðbótar í sigtinu úr þessu sama þjófagengi.
Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira