Vill fréttina fordæmda 25. ágúst 2009 04:45 Benjamín Netanjahú Forsætisráðherra Ísraels hélt í gær af stað í fjögurra daga Evrópuferð.nordicphotos/AFP
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segir að sænsk stjórnvöld hafi farið yfir strikið með því að neita að fordæma frétt í sænska dagblaðinu Aftonbladet, þar sem sagt var frá grunsemdum Palestínumanna um að ísraelskir hermenn hefðu drepið Palestínumenn til að selja úr þeim líffæri. „Við erum ekki að biðja um afsökunarbeiðni, heldur fordæmingu,“ sagði Netanjahú, sem í gær tjáði sig í fyrsta sinn opinberlega um málið. Jan Helin, ritstjóri Aftonbladet, svaraði hins vegar fyrir sig í leiðara í gær, þar sem hann sagðist hvorki vera nasisti né gyðingahatari: „Ég er ábyrgur ritstjóri sem gaf grænt ljós á frétt vegna þess að hún vekur upp nokkrar spurningar,“ skrifaði hann. Hann tók jafnframt fram að blaðið hefði engar sannanir í fórum sínum fyrir því, að fréttin sé rétt. Á sunnudaginn birtist í blaðinu framhald fréttarinnar, þar sem segir að rannsaka þurfi hvort eitthvað sé hæft í þessum ásökunum, „annaðhvort til þess að binda enda á orðróm meðal Palestínumanna, eða, ef orðrómurinn reynist réttur, að stöðva verslun með líffæri.“ Netanjahú hélt í gær af stað í ferð til nokkurra Evrópulanda, og kom fyrst til Bretlands þar sem hann hittir Gordon Brown forsætisráðherra að máli. Síðar í vikunni mun hann heimsækja Angelu Merkel, kanslara Þýskalands. Einnig mun hann í Evrópuferðinni hitta George Mitchell, fulltrúa Bandaríkjastjórnar. Búast má við að þau þrjú leggi enn áherslu á að Ísraelsstjórn haldi starfsemi ísraelskra landtökumanna í skefjum, en heima fyrir hafa hægrisinnaðir stuðningsmenn Netanjahús hvatt hann til að hunsa kröfu Bandaríkjamanna um að frekari framkvæmdir á landtökubyggðum verði stöðvaðar. Netanjahú hefur til þessa verið fylgjandi landtökubyggðum, en þarf nú að dansa línudans á milli þessara tveggja sjónarmiða. Þótt Netanjahú hafi ekki fallist opinberlega á kröfur Bandaríkjanna, þá hafa framkvæmdir í reynd legið niðri. „Forsætisráðherrann býst við því að einhver árangur náist, en að okkar mati er þess ekki að vænta að nein tímamótaskref verði stigin,“ sagði Nir Hefetz, aðstoðarmaður Netanjahús. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira