Gjaldþrot standa oft yfir áratugum saman 2. júlí 2009 04:15 Búast má við að heldur hráslagalegt verði um að litast í fjármálum fjölmargra Íslendinga á næstunni. Gjaldþrot geta fylgt fólki áratugum saman sé einhver kröfuhafinn nógu þrár við að endurnýja kröfu sína.fréttablaðið/pjetur
Eigendur fyrirtækja sem verða gjaldþrota hafa þann möguleika að stofna nýtt fyrirtæki á rústum þess gamla með nýrri kennitölu. Einstaklingar geta það trauðla og kunna að eiga í gjaldþroti svo áratugum skiptir. Mismunandi er eftir eðli krafna hve langur fyrningarfrestur er, ýmist 4, 10 eða 20 ár. Almennur fyrningarfrestur kröfuréttinda er hins vegar fjögur ár. Hákon Stefánsson, starfandi stjórnarformaður Creditinfo, segir að í raun og veru sé styttri fyrningarfrestur ekki af hinu góða í því árferði sem nú er. Kröfuhafar freistist til að halda lengur lífi í kröfum sínum í þeirri von að efnahagsástandið skáni. Þeir endurnýi því kröfurnar með tilheyrandi kostnaði fyrir skuldarann. Þannig myndast nýr fyrningarfrestur. Hákon segir að við þær aðstæður sem nú ríkja væri eðlilegra að einstaklingar væru ekki keyrðir í gjaldþrot. Það ætti bara að gera þegar grunur léki á um undanskot eigna. Hjá fólki sem ekki hefði ráð á afborgunum vegna gengisbreytinga ætti að láta duga að fara í árangurslaust fjárnám. Björn Þorri Viktorsson lögmaður segir allt of hart gengið fram gagnvart skuldurum. „Það er löngu búið að hirða af honum allar eignir og skilja hann eftir slyppan og snauðan, en samt er haldið áfram." Björn segir tilefni til að endurskoða gjaldþrotaferlið í ljósi aðstæðna. Allra mikilvægast sé þó að minnka líkur á að einstaklingar verði gjaldþrota. Í gjaldþrotum stangast á tvö sjónarmið; annars vegar eignarrétturinn, því kröfuhafar eiga fé sem þeir hafa lánað, og hins vegar það að gera einstaklingnum kleift að afla sér tekna í framtíðinni. Hér á landi var mjög ströngum viðurlögum beitt, fyrningarfresturinn var 10 ár en er nú 4 ár. Hákon segir að áður fyrr hafi menn gjarnan getað komið fótunum undir sig á ný um fjórum árum eftir gjaldþrot. Það gæti hafa breyst nú þar sem fyrirtæki vilji halda lífi í kröfum sínum og endurnýi þær. Ása Ólafsdóttir, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, segir að lögin um gjaldþrot séu til endurskoðunar í ráðuneytinu; bæði hvað varðar einstaklinga og fyrirtæki. Reynslan af lögum um greiðsluaðlögun sem samþykkt var í vetur verði metin í haust. Hún bendir á að samkvæmt þeim lögum geti einstaklingar í gjaldþrotaskiptum lokið þeim með greiðsluaðlögun.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Fleiri fréttir Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Sjá meira