Gylfi Magnússon: Ísland getur vel staðið undir Icesave Hafsteinn Gunnar Hauksosn skrifar 29. júní 2009 16:14 Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra.
Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, sagði enga munu vilja lána eða eiga viðskipti við ríki sem ekki gerir upp sínar skuldir í óundirbúnum fyrirspurnartíma ráðherra á Alþingi í dag. Hann sagði íslenska ríkið jafnframt vel geta staðið undir skuldbindingum sínum vegna Icesave samninganna. Þessi ummæli komu í kjölfar þess að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þingmaður Framsóknar, sakaði ráðherrann um hræðsluáróður vegna yfirlýsinga hans um að Ísland væri hið nýja Enron og yrði Kúba norðursins ef Icesave samningurinn yrði ekki samþykktur. Hann spurði hvað Gylfi hefði fyrir sér í því og hvernig hann leyfði sér að viðhafa slíkan hræðsluáróður. Gylfi sagði þá margt svipað með bankahruninu og falli Enron. Það væri einfaldlega hreinskilið gagnvart umheiminum að viðurkenna það og jyki trúverðugleika landsins út á við. Kúbu-samlíkingin væri sprottin af sama meiði. Þá aftók Gylfi að Ísland gæti ekki staðið við þær skuldbindingar sem kveðið er á um Icesave samningnum, hann hefði reiknað það út sjálfur. „Útflutningstekjur eru ríflega 5 milljarðar evra á ári og hafa aukist um átta prósent að meðaltali á síðustu 15 árum. Þetta er það sem þjóðarbúið hefur til ráðstöfunar," sagði Gylfi. Hann sagði þessar miklu útflutningstekjur standa undir því sem upp á vantar eftir að eignir Landsbankans hafa verið teknar upp í Icesave skuldina, enda hefði kreppan ekki mikil áhrif á útflutning þjóðarinnar.
Mest lesið Loka bandaríska sendiráðinu í Ísrael Erlent Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Innlent Færeyingar vilja fullveldi Erlent Segir stefna í menningarslys á Birkimel Innlent Kærður fyrir að vanvirða íslenska fánann Innlent Segist vita hvar klerkurinn feli sig en vilji ekki drepa hann strax Erlent Trump fundar með þjóðaröryggisráði Erlent Fimmtán sæmdir fálkaorðunni Innlent „Það er komin aðeins skýrari mynd“ Innlent Ný og glæsileg heilsugæslustöð í Suðurnesjabæ Innlent Fleiri fréttir Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Ný og glæsileg heilsugæslustöð í Suðurnesjabæ Segir stefna í menningarslys á Birkimel Kröfur Bandaríkjaforseta, „lágkúruleg“ blokk og hátíðarhöld Skjálfti fannst í Hveragerði Fimmtán sæmdir fálkaorðunni Veðrið setti strik í reikninginn en Lóa öðlast framhaldslíf Einn af hverjum fjórum er erlendur ríkisborgari í atvinnulífinu Hefur leit að nýjum saksóknara Ræða Höllu: Facebookfrí, staða drengja og hatrömm heift Ráðherra um afsögn Helga Magnúsar og hátíðahöld um land allt Katrín Halldóra er fjallkonan í ár Kærður fyrir að vanvirða íslenska fánann Flugfélög með áratuga sögu horfin af markaði Ótækt að íþróttafélögin selji áfengi án leyfis Meðal stærstu skjálfta í Ljósufjallakerfi Guðmundur í Brim hættir hjá SFS Hótelharmleikur, áfengisleyfi í ólagi og hittaramessa Þyrlan á flugi yfir Kópavogi Helgi hafnar flutningi og lætur af embætti „Það er komin aðeins skýrari mynd“ Starfsfólk á kvikmyndasetti Nolan gistir í grunnskóla Þorbjörg Sigríður biður Ingibjörgu Isaksen afsökunar Engar framfarir þrátt fyrir brýningu Loftslagsráðs Íbúar í Kópavogi með öryggismyndavélar hafi samband við lögreglu Kanadískt svifryk hrellir borgarbúa Segir ásakanir SFS um blekkingu og afvegaleiðingu alvarlegar Stofna vinnuhóp til að sporna gegn ofbeldi í garð verslunarmanna Tryggir þjónustu við konur með endómetríósu Teikn á lofti þegar kemur að áfengisneyslu unglinga Sjá meira