Loksins komið líf í ufsaveiðarnar 29. júní 2009 18:30
Ísfisktogarinn Ásbjörn RE er nú á ufsaveiðum en skipið kom til hafnar sl. fimmtudagskvöld og fór út að nýju um helgina. Það bar helst til tíðinda í síðustu veiðiferð að ufsinn gaf sig loksins til en ufsaafli togaranna hefur verið með tregara móti það sem af er árinu, að því er segir á heimasíðu HB Granda um veiðarnar. ,,Það var kominn tími til að fá góðan ufsaafla og það tókst að þessu sinni. Við vorum með 96 tonn af ufsa og einnig um 46-47 tonn af karfa," segir Friðleifur Einarsson, skipstjóri á Ásbirni RE, en að hans sögn var skipið að veiðum á Fjöllunum eða hinum hefðbundnu heimamiðum ísfisktogara HB Granda. Til marks um ufsaaflann að þessu sinni má nefna til samanburðar að lítið fékkst af ufsa í aprílmánuði og það sem af er júní hefur aflinn yfirleitt ekki verið nema um 30 til 35 tonn af ufsa í túr. ,,Ufsinn er þarna. Það er engin spurning. Þótt togurunum hafi gengið illa að veiða ufsa þá hefur verið góður ufsaafli hjá færabátum en af einhverjum ástæðum hefur hann verið síður veiðanlegur í troll," segir Friðleifur Einarsson. Tveir ísfisktogara HB Granda, Ásbjörn RE og Sturlaugur H. Böðvarsson AK, eru nú að veiðum en Ottó N. Þorláksson RE er nú inni vegna löndunar.
Mest lesið Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Innlent Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Innlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Innlent Fleiri fréttir Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Sjá meira