Stórhættulegt svæði 29. júní 2009 04:30 Björgun Mesta mildi þykir að fimmtán ára drengur hafi sloppið með lítil sem engin meiðsl, eftir að hafa hrapað tólf metra ofan í jökulsprungu. Myndir/Þórður Guðnason „
Þetta er ekki þannig svæði að mönnum ætti að detta í hug að fara um það á snjósleða. Það er stórhættulegt. Drengurinn fer niður í hallann, þar sem allt er krosssprungið yfir sumartímann. En þetta skrifast bara á ókunnugleika,“ segir Snorri H. Jóhannesson í Björgunarsveitinni Ok í Borgarnesi. Hann var einn af tugum björgunarsveitarmanna sem kallaðir voru út á Geitlandsjökul, vestasta hluta Langjökuls, á laugardag. Þar hafði fimmtán ára drengur fallið um fimmtán metra ofan í jökulsprungu. Hann lenti á syllu niðri í sprungunni og náði að halda sér á henni í um tvær klukkustundir, eða þangað til björgunarsveitarmenn hífðu hann upp. Svo virðist sem drengurinn hafi lent í hliðarhalla, átt erfitt með að snúa aftur upp og því smáþokast niður eftir jöklinum. Hann hafi stöðvað sleðann og ætlað að ganga til baka en þá dottið ofan í sprunguna. Þeir sem voru með honum komu svo að sleðanum mannlausum. Þeir brugðust hárrétt við, að mati Snorra, og gerðu björgunarsveitum strax viðvart. Stuttu síðar höfðu þeir komist að því hvar hann fór niður og höfðu náð sambandi við hann. Talið er að að minnsta kosti tvö hundruð manns hafi verið uppi á Langjökli á laugardag, í ýmiss konar útivist. Fyrstu fréttir af slysinu sögðu ekki annað en að sleðamaður hefði farið ofan í sprungu á Langjökli. Við það urðu allar línur rauðglóandi hjá björgunarsveitum og Landhelgisgæslunni, og ljóst að fjöldi manns óttaðist um aðstandendur sína, áður en frekari fréttir bárust af slysinu. „Þessi jökull er orðinn að þvílíku leiksvæði að það er undravert hvað verður í raun lítið um óhöpp á honum,“ segir Snorri. Björgunin þótti takast vonum framar vel. Sigurður Axel Axelsson, undanfari í Björgunarfélagi Akraness, var einn þeirra fyrstu á svæðið. Hann beið við brún sprungunnar á meðan félagi hans seig niður til drengsins. „Það gekk mjög vel að koma honum á börur og hífa hann upp. Stuttu seinna var hann kominn í þyrluna, svo þetta gekk mjög vel í alla staði. Það var sumarveður, svo þetta var björgun við bestu aðstæður.“ Hann segir ótrúlega mildi að ekki hafi farið illa. „Þetta var pínulítil sylla sem hann lenti á. Ef hann hefði farið ofan í sprunguna annars staðar hefði hann sennilega hrapað tíu til fimmtán metra í viðbót. Þetta var eiginlega eins og í einhverri ævintýrabók. Hann er mjög heppinn.“ Drengurinn var orðinn kaldur niðri í sprungunni en kenndi sér að öðru leyti lítils meins. Hann var fluttur með þyrlu til Reykjavíkur og liggur nú inni á Barnaspítala Hringsins, þaðan sem hann mun útskrifast á næstu dögum. holmfridur@frettabladid.is
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Sjá meira