Erlent

Obama ávarpar þingið í næstu viku

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna. Mynd/AP
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna. Mynd/AP Mynd/AP

Barack Obama flytur ræðu um tillögur sínar um uppstokkun á bandaríska heilbrigðiskerfinu á sameiginlegum fundi fulltrúa- og öldungadeildar Bandaríkjaþings næstkomandi miðvikudag. Forsetinn hefur sagt núverandi kerfi allt of dýrt og þungt í vöfum.

Tillögur Obama hafa mætt töluverðri andstöðu meðal þingmanna en þær þykja heldur róttækar. Forsetinn fullyrðir að áætlun sín muni spara hinu opinbera hundruð milljarða dollara nái hún fram að ganga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×