Stefnir Tinna fyrir kynþáttafordóma Atli Steinn Guðmundsson skrifar 2. september 2009 07:18 Af forsíðu bókarinnar Tinni í Kongó.
Þeir eru ófáir sem styttu sér stundir í æsku yfir teiknimyndasögunum um Tinna sem belgíski teiknarinn Georges Prosper Remi, betur þekktur undir höfundarnafninu Hergé, gerði ódauðlegan ásamt drykkfellda skipstjóranum Kolbeini, prófessor Vandráði og fleiri góðum mönnum. Ekki eru Tinnabækurnar þó óumdeildar eins og sjá má af því að Bienvenu Mbutu Mondondo, endurskoðandi í Kongó í Mið-Afríku, hyggst nú stefna útgefanda bókanna, Moulinsart í Belgíu, fyrir frönskum dómstól. Málið höfðar Mondondo vegna þess að hann telur bókina Tinni í Kongó ýta undir kynþátta- og útlendingahatur auk nýlendustefnu en Kongó var belgísk nýlenda til 1960. Einhverjir eru greinilega sammála þessu þar sem Bretar bönnuðu bókina árið 2007 með þeim rökum að þeldökkur þjónn Tinna í bókinni væri látinn líta út eins og api og tala eins og vanviti. Útgefandinn hefur ekkert tjáð sig um málið en bókin er frá fjórða áratug síðustu aldar. Vitað er að Hergé gerði breytingar á henni árið 1946 og tók þá út allt sem benti til þess að Kongó væri belgísk nýlenda.
Mest lesið Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Erlent Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Innlent „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Innlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent Fleiri fréttir Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Sjá meira