Engin gögn styðja fullyrðingar ráðamanna Höskuldur Kári Schram skrifar 28. júní 2009 12:10 Frá blaðamannafundi InDefence-hópsins um miðjan júní. Mynd/Arnþór Birkisson
Engin gögn styðja þær fullyrðingar ráðamanna að Íslendingar séu tilneyddir til að fallast á Icesave samkomulagið. Þetta segir Ólafur Elíasson, hjá Indefence hópnum. Hann gagnrýnir stjórnvöld fyrir að verja ekki þjóðina gagnvart yfirgangi Breta og Hollendinga. Frumvarp ríkisstjórnarinnar um ríkisábyrgð á innlánstryggingasjóði vegna Icesave samkomulagsins við Hollendinga og Breta verður lagt fram á Alþingi á næstu dögum. Allt að 400 milljarðar króna gætu fallið á ríkið vegna samkomulagsins. Fram kom í máli Gylfa Magnússonar, viðskiptaráðherra, - í fréttum stöðvar tvö á föstudag - að verði frumvarpið fellt eigi Ísland það á hættu að einangrast á alþjóðlegum vettvangi. Það setji ennfremur fyrirhugaðar lánveitingar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og nágrannaþjóða í uppnám. Ólafur Elíasson, hjá Indefence hópnum, segir að stjórnvöld þurfi að sýna fram á með sannanlegum hætti að íslendingar verði beitti viðskiptaþvingunum verði ekki fallist á Icesave. Engin opinber gögn styðji málflutning ráðamanna. „Eru þetta álitsgerðir þjóðþinganna hérna í kringum okkur? Er þetta yfirlýsingar sendiherra þeirra? Eru þetta einhverjar skýrslur sem eru til í okkar ráðuneytum? Um hvaða þvinganir eru menn að tala um? Eigum við ekki að byrja á því að fá það upp á borðið til þess að íslenska þjóðin gæti hugsanlega sætt sig við það að ganga að slíkum afarkostum vegna þess að þvinganirnar eru svo óhugnanlegar? Við krefjumst þess einfaldlega að þessar þvinganir komi upp á borðið," segir Ólafur. Ólafur segir að stjórnvöld hafi ekki varið þjóðina gagnvart yfirgangi Breta og Hollendinga. „Hvernig stendur á því að þegar yfirvöld eru að segja okkur Íslendingum að það sé verið að veitast að okkar hagsmunum, Hollendingar og Bretar, nú eru sömu yfirvöld að tala málstað Hollendinga og Breta? Er ekki kominn tími til að þjóðin verji sig gagnvart þessum yfirgangi okkar nágranna?"
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Sjá meira