Tónlistarmenn fengu 11 milljónir 3. apríl 2009 04:00 Eldar Ástþórsson hjá Kraumi tilkynnir um úthlutanir Kraums á skemmtistaðnum Boston við Laugaveginn. fréttblaðið/anton
Tónlistarsjóðurinn Kraumur úthlutaði í gær tæpum ellefu milljónum króna til listamanna og hljómsveita, eigin verkefna Kraums og samstarfsverkefna sjóðsins. Alls var 4,9 milljónum veitt til tónlistarmanna og hljómsveita. Hjaltalín fékk hæsta styrkinn, eða 1,2 milljónir króna. Hann mun nýtast við gerð nýrrar plötu og tónleikahald. „Fyrir hljómsveit eins og Hjaltalín þar sem eru sjö kjarnameðlimir er það mjög gott að fá svona pening. Við erum líka að vinna í okkar næstu plötu og það er mikill kostnaður við hana. Þessi peningur verður vel nýttur við gerð hennar,“ segir Steinþór Helgi Arnsteinsson, umboðsmaður Hjaltalín, hæstánægður með styrkinn. Næsthæsta styrkinn, eða hálfa milljón, fengu Nordic Affect, Sin Fang Bous, Ólafur Arnalds og For a Minor Reflection. Einnig fékk Lay Low hálfa milljón fyrir tónleika sína erlendis síðar á árinu, þar á meðal á hátíðunum Glastonbury og End of the Road. Að auki fékk Mógil hálfa milljón í styrk fyrir tónleika sína á stærstu heims- og þjóðlagahátíð heims, Vomex, og fyrir væntanlega tónleikaferð sína um Ísland. Ólöf Arnalds, sem spilaði einmitt á Vomex í fyrra við mjög góðar undirtektir, fær einnig hálfa milljón vegna undirbúnings annarrar plötu sinnar. Þá fá þrjár efstu sveitirnar á Músíktilraunum eina milljón króna samanlagt fyrir hljóðverstíma á Flateyri. Einnig voru myndarlegir styrkir veittir vegna námskeiða og vinnusmiðja á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður og vegna tónleika ungra listamanna á Listahátíð Reykjavíkur og tónlistarhátíð unga fólksins í Kópavogi, auk fleiri styrkja. - fb
Mest lesið Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Lífið „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Lífið „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Lífið „Klukkan er fimm einhvers staðar“ Lífið Fleiri fréttir „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Sjá meira