Ferðamönnum bent á ódýra hamfarasvæðið Ísland Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 6. júlí 2009 11:59 Glaðbeittir ferðamenn í Bláa lóninu, en heilsulaugar landsins eru vinsælar hjá ferðaskríbentum erlendis. Mynd/Vilhelm
Eftir að sumra tók á norðurhveli jarðar hefur fjöldi erlendra fjölmiðla mært Ísland sem hagstæðan sumarleyfisstað. Ástæðan er auðvitað efnahagsþrengingar landsins, sem meðal annars hafa ollið hruni íslensku krónunnar. Það hefur gert það að verkum að fyrir íbúa flestra landa er orðið mun hagstæðara að ferðast til landsins en nokkurtíman á umliðnum árum. Strax hjá töskubeltunum í Leifsstöð tekur skilti með áletruninni „Are you here for the nature or the exchange rate?" við ferðamönnum. Meira að segja breska fyrirtækið Post Office metur Ísland sem hagstæðasta sumarleyfisstað heims um þessar mundir, en íslenska krónan er einn af afar fáum gjaldmiðlum sem hafa veikst gagnvart breska pundinu, ekki styrkst. Hvalkjöt og skartgripir úr hrauni Bandaríski vefmiðillinn The Hub greinir frá því að verðmiðinn á Íslandsferð sé nú loksins á færi almennings. Hér á landi sé hægt að gera hluti sem flestir hafa aldrei prófað áður, eins og að borða hval eða lunda, bruna á snjósleðum yfir jökul eða kaupa skartgripi úr alvöru hrauni. Í grein The Hub segir einnig frá tískumógúlnum Nínu Björk, sem gerðist tískuleiðsögumaður um Reykjavík eftir bankahrunið og aðstoðar ferðamenn við alíslensk fatakaup - fyrir hóflega þóknun.„Farið til hamfarasvæða" Bandaríski ferðamálafrömuðurinn Pauline Frommer ráðleggur lesendum Marketplace að ferðast til hamfarasvæða ef þeir vilja hagstætt ferðalag - og nefnir Ísland að sjálfsögðu sem dæmi. „Verðlagið á Íslandi er frábært. Farið þangað sem hörmungarnar eru," segir Pauline.Reykjavík þykir smart Bandaríska vefritið Huffington Post setur Ísland í 8. sæti yfir ákjósanlegustu og ódýrustu ferðamannastaði heims, en vefritið á sér milljónir lesenda. Þar er sérstaklega tiltekið hversu smart Reykjavík er og heilsulaugum landsins hrósað í hástert. Efnahagsþrengingarnar sanna því hið fornkveðna; fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott - allavega fyrir erlenda ferðamenn.
Mest lesið „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Erlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Fleiri fréttir Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Sjá meira