Laxveiðar í boði Orkuveitunnar hugsanlega endurskoðaðar Magnús Már Guðmundsson skrifar 6. júlí 2009 11:30 Guðlaugur Gylfi Sverrisson, stjórnarformaður Orkuveitunnar, Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Stjórnarformaður Orkuveitunnar segir sjálfsagt að skoða hvort að laxveiði í boði fyrirtækisins í Elliðaánum eigi rétt á sér. Sjálfur hafi hann ekki þegið slíkt boð enn sem komið er. Þorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrúi VG og stjórnarmaður í Orkuveitunni, lagði fyrir helgi fyrirspurn í stjórn fyrirtækisins um laxveiðarnar. Í samtali við fréttastofu í gær gagnrýndi Þorleifur boðsferðirnar og sagði þær tímaskekkju þegar á sama tíma væri farið í grimmar sparnaðaraðgerðir.Dagurinn kostar allt að 16 þúsund Í fyrrasumar bauð Orkuveitan borgarfulltrúum, fyrrum borgarstjórum og viðskiptavinum, fulltrúum eigenda og stjórnendum fyrirtækisins í veiði í Elliðaárnar í samanlagt átta daga. Boðsgestum stóð oftar en ekki til boða leiðsögn reyndra veiðimanna og ósjaldan var boðið upp á veitingar í tengslum við ferðirnar. Verð fyrir eina stöng í sumar er óbreytt frá síðasta ári og kostar dagurinn á bilinu 11.760 til 16.080 krónur. Veiðileyfi kostar fimmtung minna fyrir félagsmenn Stangveiðifélags Reykjavíkur.Gamlar hefðir Guðlaugur Gylfi Sverrisson, stjórnarformaður Orkuveitunnar, segir boðsferðirnar skýrast af gömlum venjum og hefðum milli leigutaka og leigusala. Í áraraðir hafi borgarstjóra og stjórnarformanni Orkuveitunnar verið boðið í veiði ánum.Mynd/Vilhelm GunnarssonElliðaárnar hafa verið í eigu borgarinnar í meira en öld. Lungað af þeim tíma hefur Stangaveiðifélag Reykjavíkur selt veiðileyfi í árnar. Sitjandi borgarstjóri opnar Elliðaárnar árlega í boði stangveiðifélagsins. Þá er einnig hefð fyrir því að öllum borgarfulltrúum standi til boða að veiða í ánum í boði Orkuveitunnar en þeir fá þó misjafnlega mörg boð. Það ræðst meðal annars af því hvort þeir eigi sæti í borgarráði eða stjórn Orkuveitunnar.Sjálfsagt að skoða málið „Mín afstaða er sú að þetta hefur viðgengist í mörg ár. Það er komin ákveðin hefð fyrir þessu en það getur vel verið að sú hefð sé röng," segir stjórnarformaðurinn. Guðlaugur segir ekkert athugavert við fyrirspurn Þorleifs. Henni verði svarað og sjálfsagt væri að skoða málið.
Tengdar fréttir Orkuveitan býður völdum í lax þrátt fyrir niðurskurð Orkuveita Reykjavíkur býður kjörnum fulltrúum og völdum starfsmönnum Orkuveitunnar í laxveiði í Elliðará á besta tíma í sumar. Borgarfulltrúi Vinstri grænna, Þorleifur Gunnlaugsson, sat sinn fyrsta fund hjá stjórn Orkuveitunnar á föstudaginn og lagði fram fyrirspurnir um hversu marga daga Orkuveitan hefði tekið frá, hverjum er boðið og svo hver kostnaðurinn sé af boðsferðunum. 5. júlí 2009 13:10 Mest lesið Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Fleiri fréttir Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Sjá meira
Orkuveitan býður völdum í lax þrátt fyrir niðurskurð Orkuveita Reykjavíkur býður kjörnum fulltrúum og völdum starfsmönnum Orkuveitunnar í laxveiði í Elliðará á besta tíma í sumar. Borgarfulltrúi Vinstri grænna, Þorleifur Gunnlaugsson, sat sinn fyrsta fund hjá stjórn Orkuveitunnar á föstudaginn og lagði fram fyrirspurnir um hversu marga daga Orkuveitan hefði tekið frá, hverjum er boðið og svo hver kostnaðurinn sé af boðsferðunum. 5. júlí 2009 13:10